Um okkur

LANDMARK fasteignamiðlun er ein öflugasta og framsæknasta fasteignasala landsins en hún var stofnuð árið 2010.

Eigendur LANDMARK  eru Andri Sigurðsson, Júlíus Jóhannsson, Monika Hjálmtýsdóttir, Sigurður Samúelsson, Sveinn Eyland Garðarsson og Þórey Ólafsdóttir sem jafnframt er framkvæmdastjóri LANDMARK.

Á LANDMARK starfa 14 starfsmenn en allir fasteigasalar okkar eru aðilar að Félagi fasteignasala 
sem er mikilvægt hagsmunamál fyrir alla neytendur. Fasteignasalar innan Félags fasteignasala starfa einnig eftir ströngum siðareglum og viðhalda þekkingu sinni með því að sækja reglulega metnaðarfulla endurmenntun.

Hlutverk okkar er að leiða saman kaupandur og seljendur fasteigna með sameiginlega hagsmuni beggja aðila að leiðarljósi þannig að allir aðilar gangi ánægðir frá borði, mæli með þjónustu okkar og leiti til okkar aftur.

Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar, jafnt kaupendum og seljendum bestu þjónustu sem völ er á með því að ástunda vönduð og heiðarleg vinnubrögð.

Fasteignasalar á LANDMARK starfa á grundvelli löggildingar samkvæmt lögum um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015 sbr. lög 131/2015. Aðstoðarmenn fasteignasala starfa á grundvelli undanþáguákvæða sömu laga um starfsheimildir nemenda sbr. 8.gr. a. og ákvæða II og IV til bráðabirgða. Við sölu eigna skipta fasteignasalar og aðstoðamenn fasteignasala með sér verkum í samræmi við ákvæði laga. Aðstoðamenn fasteignasala aðstoða við úttekt eigna og gerð söluyfirlits, aðstoða við gerð kauptilboðs, sýna fasteign og aðstoða við gerð fjárhagslegs uppgjörs.  Aðstoðamaður fasteignasala starfar á ábyrgð löggilts fasteignasala.

LANDMARK starfar eftir peningaþvættisstefnu fasteignasölunnar skv. lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og skv. Reglugerð nr. 745/2019 um áreiðanleikakönnun vegna aðgerða gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Rekstaraðili LANDMARK er LANDMARK fasteignamiðlun ehf.  Heimilisfang: Hlíðasmára 2, 201 Kópavogur. Kt. 700811-0500 - vsk nr. 108914. Netfang: [email protected]

Rekstarfélagið er skráð einkahlutafélag hjá fyrirtækjaskrá RSK.

Starfsmenn

Þórey Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali, framkvæmdastjóri
SJÁ NÁNAR
Andri Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Monika Hjálmtýsdóttir
Löggiltur fasteignasali, viðskiptafr. BSc
SJÁ NÁNAR
Júlíus Jóhannsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Sigurður Rúnar Samúelsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Sveinn Eyland
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Þórarinn Thorarensen
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Löggiltur fasteignasali / skjalavinnsla
SJÁ NÁNAR
Jón Óskar Karlsson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Eggert Maríuson
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Löggiltur fasteignasali / skjalavinnsla
SJÁ NÁNAR
Freyja Rúnarsdóttir
Löggiltur fasteignasali
SJÁ NÁNAR
Guðný Jóna Þórsdóttir
Skjalavinnsla
SJÁ NÁNAR
Eva Rakel Helgadóttir
Skrifstofa
Símanúmer
[email protected]
SJÁ NÁNAR