LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [email protected] kynna:Um er að ræða rúmgóða og vel skipulagða þriggja herbergja 93.2 fm íbúð á jarðhæð með sérinngangi á þessum vinsæla stað í Rimahverfinu í Grafarvogi.
Húseignin stendur á jaðarlóð neðst í götunni og er afgirt sérverönd til suð-vesturs með íbúðinni.
Stutt er í skóla, leikskóla, íþróttar, útivistarsvæði og stofnbrautir.
Búið er að setja upp rafhleðslustöðvar á bílaplan framan við hús.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er merkt 01-01-04, samtals 93.2 fm að stærð.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
[email protected]FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Forstofu, hol, stofu/borðstofu, alrými, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi/geymsla innan íbúðar.
Nánari lýsing á eign:Komið er inn um
sérinngang af götu í forstofu með fataskápum.
Alrými þaðan sem að gengið er í önnur rými íbúðar er nokkuð bjart og rúmgott.
Stofa/borðstofa renna saman í opið rými og er útgengt á afgirta og
skjólgóða suð-vestur verönd úr stofu.
Eldhús er hálf opið inn í borðstofu/alrými og snyrtileg eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, flísar á vegg milli skápa að hluta, góður búrskápur á vegg, nýlegur ofn og helluborð í innréttingu, gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu og einföldum ísskáp.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataskápum alveg yfir vegg og upp í loft.
Barnaherbergi er við inngang þegar komið er inn úr forstofu og er fataskápur í herbergi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, snyrtilega innrétting með góðu skápaplássi í kringum vask og búið er að filma innréttinguna, baðkar með sturtuhengi og glerskilrúmi,
Þvottaherbergi/geymsla er innan íbúðar og er ágætis innrétting undir þvottavél og þurrkara.
Sameiginleg
hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]Landmark fasteignamiðlun og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins.
Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat