Lindargata 39, 101 Reykjavík (Miðbær)
116.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
103 m2
116.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2014
Brunabótamat
68.390.000
Fasteignamat
100.650.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [email protected] kynna:
Um er að ræða glæsilega, bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja 103,3 fm íbúð á 7.hæð með aukinni lofthæð og gólfsíðum gluggum í eftirsóttu lyftuhúsi í Skuggahverfi 2-3 við Lindargötu 39.
Sér bílastæði í lokaðri bílgeymslu fygir með eigninni. Mjög snyrtileg sameign og er allt til fyrirmyndar þar. Tvær lyftur eru í húseigninni. 
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 95.8 fm  merkt 14-07-03 og geymsla er 7.5 fm merkt 14-113, samtals 103.3 fm að stærð. Stæði í bílgeymslu merkt 16B-120.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.
ATHUGIÐ AÐ MYNDIR Á VEF ERU AF ÍBÚÐ Á 9.HÆÐ.


Eignin skiptist í:
Forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu og stæði í bílgeymslu.  
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.


Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskáp.
Stofa/borðstofa er opið bjart rými með gólfsíðum gluggum á tvo vegu og er stórglæsilegt útsýni út á sjó og til fjalla úr stofu og af svölum sem að snúa til suð-austurs, arin er í stofurými.
Eldhús er með fallegri dökkri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og er steinn í borðplötum í eldhúsi og eldunareyja sem skilur af eldhús og stofu, innbyggð uppþvottavél í innréttingu og veglegur ísskápur með frysti, ofn í vinnuhæð og helluborð í eyju með gufugleypi yfir.
Hjónaherbergið er rúmgott með  fataskápum með rennihurðum á heilum vegg.
Auka herbergi er innaf stofu ekki með fataskáp. 
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum,  Walk-in sturta og baðkar, falleg innrétting með efri og neðri skápum steinn í borðplötu, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með flísalögðu gólfi og góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara, steinn á borði  með undirlímdum vaski. Nokkrar hillur.
Íbúðinni fylgir rúmgóð 7.5 fm sérgeymsla með ca 3 m lofthæð í kjallara hússins.
Gólfefni: Parket og flísar á gólfum eignar.

Íbúðinni fylgir sérmerkt bílastæði í bílakjallara hússins. Búið er að gera ráð fyrir rafhleðslustöð við bílastæðið.
Einnig eru fjölmörg einkastæði fyrir íbúa og gesti á lóð. Sameiginleg hjólageymsla er á 1.hæð Starfandi húsvörður fyrir Skuggahverfi  2-3 .
Glæsileg útsýnis íbúð í miðborginni, stutt í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og afþreyingu. 
Stutt er í stofnbrautir.
 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.