LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [email protected] kynna:Um er að ræða sjarmerandi 167.1 fm einbýlishús sem er þrjár hæðir ásamt rislofti yfir húsi sem er nýtanlegt.
Einbýlishúsið er á steyptum kjallara og timbur þar fyrir ofan og er efri hluti húss bárujárnsklæddur.
Suður-verönd er framan við hús sem er mjög skjólgóð og af verönd er gengið niður á neðri verönd þar sem að það er heitur pottur.
Flott einbýlishús á frábærum stað sem hefur uppá möguleika að bjóða. Stutt í miðbæ Hafnarfjarðar, alla þjónustu og útivistar/göngusvæði.
Ágætis leigutekjur af íbúð í kjallara í dag.
EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR FLJÓTLEGA EFTIR KAUPSAMNING.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Eign er 167.1 fm merkt 01-01-01 með fastanúmer: 207-6734. Kjallari er skráður 57.8 fm, aðalhæð er skráð 57.8 fm og efri hæð er skráð 51.7 fm og svo er risloft yfir efri hæð sem er óskráð en vel nýtanlegur gólfflötur þar ca. 20 fm.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
[email protected]FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í:Aðalíbúð skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, risherbergi, baðherbergi, fataherbergi, þvottaherbergi og geymslu.
Íbúð í kjallara er forstofa, alrými með eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi. Sérmerkt stæði með íbúð.Nánari lýsing á eign:Aðalinngangur er á mið/aðalhæð og þar er komið í rúmgóða og bjarta forstofu með fataskápum, úr forstofu er stigi upp á efri hæð.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými og er opnanleg hurð úr stofu út á verönd.
Rúmgott endurnýjað
eldhús er á hæðinni sem að er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og eru plötur á vegg milli skápa, uppþvottavél í innréttingu, borðkrókur.
Stigi er úr forstofu uppá efri hæð en þar eru
þrjú svefnherbergi og er útgengt á
suður-svalir úr hjónaherbergi og eins er inngengt á
baðherbergi beint úr hjónaherbergi.Fataherbergi með ágætis hirslum er á ganginum.
Mjög rúmgott og bjart
baðherbergi með baðkari, sturtuklefa, góðar skápainnréttingar eru í kringum vask, handklæðaofn.
Af gangi
efri hæðar er timburstigi uppá risloft sem að er manngengt með glugga og getur nýst sem
herbergi eða sjónvarpsherbergi.Af
aðalhæð úr stofurými er stigi niður í kjallara en þar er
þvottaherbergi og eins er geymsla í kjallara.
Sérinngangur er í íbúð í kjallara af
suður-verönd sem er
2ja herbergja og skiptist í forstofu, stofu/borðstofu/eldhús, svefnherbergi og baðherbergi.Heitur pottur er á suður-verönd framan við hús.
Gólfefni: Flísar, harðparket og timburfjalir eru á gólfum eignar..
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat