LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [email protected] kynna:Um er að ræða sex herbergja 229 fm einbýlishús á einni hæð í Vallarhverfinu í Hafnarfirði.
Mjög gott skipulag er á húsnæðinu og mikil lofthæð í stofu og eldhúsi, gólfsíðir gluggar og er útgengi út á verönd til suð-austurs úr stofu og þar er heitur pottur (hitaveituskel).
Húsnæðið þarfnast töluverðar endurbóta og standsetningar og eru áhugasamir aðilar hvattir til þess að skoða húseign vel.
HJÓNAHERBERGI MEÐ FATAHERBERGI OG BAÐHERBERGI INNAF OG ÞÁ ERU ÞRJÚ GÓÐ SVEFNHERBERGI TIL VIÐBÓTAR Í HÚSINU.EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúðarrými er 191.2 fm merkt 01-01-01 og innbyggður bílskúr er 37.8 fm merkt 01-01-02 alls 229 fm.Nánari upplýsingar um eign:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða
[email protected]FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Eignin skiptist í: Forstofu, hol/herbergjagang, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú herbergi, hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi innaf, baðherbergi, þvottaherbergi og bílskúr.
Afgirt verönd er í garði og er heitur pottur (hitaveituskel) á verönd.
Nánari lýsing á eign:Forstofa með fataskápum.
Hol/herbergjagangur og af honum er gengið í önnur rými húseignar.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými sem að er með mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum.
Eldhús er opið inn í stofu og er eldhúsinnrétting með efri og neðri skápum, eyja er í eldhúsi sem að skilur
eldhús aðeins frá stofurými.
Hjónaherbergi er innaf stofu og er
fataherbergi innaf herbergi og eins er
aðgengi að baðherbergi.Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, baðkar og sturta, upphengt salerni, innrétting með skúffum undir vask og veggskápur.
Þrjú barnaherbergi eru í húsinu og eru fataskápar í öllum herbergjum, búið er að útbúa nett milliloft í einu barnaherberginu.
Baðherbergi er við
forstofu sem að er flísalagt á gólfi og veggjum, sturta, upphengt salerni og gert er ráð fyrir handklæðaofni á vegg.
Innaf
herbergjagangi er inngengt í rúmgott þvottaherbergi og úr þvottaherberbergi er inngengt í rúmgóðan bílskúr.
Gólfefni: Flísar og parket er á gólfum eignar.
SELJENDUR HAFA ALDREI BÚIÐ Í HÚSEIGN OG GETA ÞVÍ EKKI UPPLÝST UM ÁSTAND OG ÞVÍ ERU ÁHUGASAMIR AÐILAR HVATTIR TIL ÞESS AÐ SKOÐA EIGNINA VEL.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat