Kuggavogur 26, 104 Reykjavík (Vogar)
78.000.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
75 m2
78.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2023
Brunabótamat
62.250.000
Fasteignamat
69.950.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland, lögg. fasteignasali s: 6900 820 / [email protected] kynna:
Um er að ræða nýlega og vel skipulagða 75,8 fm útsýnis íbúð á fjórðu hæð með aukinni lofthæð og stæði í bílakjallara í vönduðu sex hæða lyftu fjölbýlishúsi við Kuggavog 26 í Vogabyggð.
Stórkostlegt útsýni yfir Elliðavoginn í átt að Esjunni, stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika, leik, grunnskóla og alla þjónustu.
Vandaður frágangur er á húseign og íbúð, tæki í eldhúsi eru frá AEG og Grohe blöndunartæki í eldhúsi og á baðherbergi.

ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Birt stærð eignar samkvæmt HMS:
Íbúð merkt 01-04-02 sem er 70.2 fm, sérgeymsla 5,6 fm merkt 01-00-03 samtals 75.8 fm og sér stæði í bílgeymslu merkt 01.B14.

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Fortofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi, sérgeymslu og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í sameign.

Nánari lýsing eignar:
Mjög snyrtileg sameign og rúmgott rými er framan við inngang í íbúð.
Forstofa/hol með góðum fataskápum.
Stofa/borðstofa og eldhús í opnu björtu rými, stórir gluggar og mikil lofthæð, útgengt út á skjólgóðar svalir til suð-austurs úr stofu, heimilt er að setja svalalokun á svalir.
Eldhús er með snyrtilegri eldhúsinnréttingu frá HTH, bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborð, innbyggður AEG ísskápur og uppþvottavél í innréttingu, Kvartz-stein á borðum í eldhúsi.
Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á tveimur veggjum, vaskur og borðplata er heil sambyggð eining með skúffum, spegill með baklýsingu og "Walk in" sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn á vegg, gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baðherbergi.
Sér geymsla á jarðhæð og sér bílastæði í lokaðri bílageymslu. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.