Giljaland 13, 108 Reykjavík (Austurbær)
172.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á pöllum
7 herb.
235 m2
172.000.000
Stofur
3
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1968
Brunabótamat
98.580.000
Fasteignamat
152.650.000
Opið hús: 13. október 2024 kl. 16:00 til 16:30.

Opið hús að Giljaland 13 - eignin verður fyrst til sýnis í opnu húsi milli kl 16:00 og 16:30 sunnudaginn 13. október.

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu endurbætt raðhús með bílskúr á skjólsælum stað í Fossvogi í Reykjavík. Frábær staðsetning og mikið útsýni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla sem og Elliðaárdalinn og önnur útivistarsvæði.

Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og býður uppá mikla möguleika, tveir inngangar, tvær til þrjár stofur, fjögur til fimm svefnherbergi, rúmgott eldhús, tvö baðherbergi, þvottahús, geymsla og bílskúr. Lóð gróin og skjólsæl með nýlegri timburverönd úr cumaru harðvið og skjólveggjum.

Birt stærð eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS er 235,7 fm en þar af er bílskúr 25,6 fm.

Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit -  allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa, 
rúmgóð með fataskáp, flísar á gólfi.
Hol, nýlegt parket á gólfi.
Gestasalerni nýlega endurbætt með handlaug og upphengdu salerni, flísar á gólfi.
Eldhús með góðri innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð og tengi fyrir uppþvottavél. Búið að opna inn í borðstofu og flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, nýlegt parket á gólfi og útgengt á stórar suðursvalir.
Sjónvarpshergbergi / húsbóndaherbergi á teikningu, nýlegt parket á gólfi.

Nánari lýsing neðri hæð, parketlagður stigi á milli hæða:
Hjónaherbergi
með fataskápum, nýlegt parket á gólfi og útgengt á timburverönd / suðurgarð (eru tvö barnaherbergi á teikningu).
Barnaherbergi I með fataskáp, nýlegt parket á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp, nýlegt parket á gólfi (hjónaherbergi á teikningu).
Barnaherbergi III með lausum fataskáp, nýlegt parket á gólfi (geymsla á teikningu).
Tómstundaherbergi / hol framan við barnaherbergi III, nýlegt parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt með viðarinnréttingu, salerni og sturtu.
Þvottahús með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi og útgengt norðanmegin.
Tvær geymslur, undir stiga og innaf tómstundaherbergi.
Köld útigeymsla framan við inngang í þvottahús.

Bílskúr, heitt og kalt vatn, málað gólf.

Húsið er vel skipulagt og hefur fengið reglulegt viðhald gegnum árin jafnt innandyra sem utan en þá var skipt um þakjárn og pappa fyrir ca 15 árum, lóð að framan og aftan nýlega endurbætt. Að innan var skipt um eldhúsinnréttingu fyrir ca 15 árum en hún nýlega filmuð, gólfefni að mestu endurbætt sem og salerni á aðalhæð.

Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 -  [email protected].
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.