Höfðabakki 1, 110 Reykjavík (Árbær)
Tilboð
Atvinnuhús/ Verslunarhúsnæði
0 herb.
321 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
105.800.000
Fasteignamat
93.650.000

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna TIL LEIGU: 

Mjög vel staðsett og áberandi 321,6 fm atvinnuhúsnæði á 1. hæð (efri hæð) á besta stað á Höfðanum. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 321,6 fm og er skráð skv Þjóðskrá Íslands sem skrifstofuhúsnæði. Lofthæðin er um 3,7 m. Þess ber að geta að myndirnar að innan sýna þegar Heitir Pottar var starfrækt á sínum tíma í húsnæðinu.

Miklar endurbætur standa yfir á húsnæðinu í dag og verða þær kláraðar núna í sumar. Um er að ræða múrviðgerðir á veggjum. Rif og förgun á þakefni, þak pappalagt með tvöföldulagi af tjöruþakpappa. Útskipti allra glugga í húsinu og húsið klætt með fallegri álklæðningu.

Innkeyrsluhurð bakatil með góðri aðkomu. Húsnæðið býður upp á mikla möguleika og er mjög auðvelt að aðlaga húsnæðinu að þeirri starfsemi sem það mun hýsa. Aftari hluti húsnæðisins er lagerrými með innkeyrslu- og gönguhurð. Aðkoma frá bílaplani að framan, næg bílastæði. Snyrting og kaffiaðstaða fyrir miðju í húsnæðinu. Innst í rýminu er lagersalur og er aðkoma bakatil að lager sem er með innkeyrslu- og gönguhurð sem liggur um ramp og er gott athafnasvæði þar.

Gólfsíðir gluggar eru meðfram húsnæðinu sem snúa að gatnamótum Stórhöfða og Höfðabakka sem gefur húsnæðinu aukinn sýnileika og mikla möguleika til auglýsinga. Húsnæði sem gefur mikla möguleika til framtíðar.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðunartíma veitir: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.