Austurströnd 14, 170 Seltjarnarnes
57.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
55 m2
57.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1987
Brunabótamat
31.250.000
Fasteignamat
47.850.000

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu: 

Mjög falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja íbúð á 5. hæð með fallegu útsýni við Austurströnd 14 á Seltjarnarnesi. Gengið er inn frá Nesvegi og því er aðeins gengið upp tvær hæðir.  Eignin er skráð skv HMS: 55,6 fm og skiptist þannig að íbúðin sjálf er 50,8 fm og geymslan 4,8 fm. Húsið var sprunguviðgert og málað árið 2023 - mjög snyrtileg og vel umgengin sameign - fallegt útsýni frá stofu og svefnherbergi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðastliðnum árum t.a.m gólfefni (árið 2025), baðherbergi (árið 2024), vatnslagnir á baðherbergi og í eldhúsi - gluggar og gler í svefnherbergi og nýlegt gler í svalahurð ásamt fleiru. 

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu, fataskápur. Á vinstri hönd við inngang er eldhús með fallegri uppgerðri eldri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa. Nýleg blöndurtæki, vaskur, vifta og helluborð. Björt stofa með útgangi út á svalir með fallegu útsýni. Rúmgott svefnherbergi með góðum skápum. Á hægri hönd við inngang er flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með neðri skáp, Walk-in sturta, upphengt salerni og handklæðaofn. Sérgeymsla á 2. hæðinni. Sameiginlegt þvottahús á 4. og 5. hæð. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Gólfefni íbúðar: parket og flísar. 

ÞETTA ER EINSTAKLEGA FALLEG OG VEL SKIPULÖGÐ ÍBÚÐ Á RÓLEGUM, BARNVÆNUM OG EFTIRSÓTTUM STAÐ Á SELTJARNARNESI. STUTT Í SKÓLA, LEIKSKÓLA OG ALLA ÞJÓNUSTU.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.