Hlíðarvegur 12, 400 Ísafjörður
68.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
6 herb.
161 m2
68.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1943
Brunabótamat
62.350.000
Fasteignamat
51.000.000

LANDMARK kynnir:  Fallegt og mikið endurnýjað 161 fm, 6 herbergja einbýlishús á mjög góðum stað við Hlíðarveg á Ísafirði.  5 svefnherbergi og gestasalerni.  Efsta hæð nokkuð undir súð og því fleiri nýtanlegir fermetrar en stærð hússins segir.

*** Nýlegar endurbætur: 2018 voru gólfefni endurnýjuð á neðstu hæð, baðherbergi á neðstu hæð endurnýjað og hiti settur í gólf, klóaklagnir endurnýjaðar að hluta ( ekki frá húsi í götu).  Endurnýjað þak að hluta og gluggar og klæðning í útveggjum endurnýjað að hluta amk.  Anddyrið flísalagt og nýtt eldhús sett upp.  2026 var parket endurnýjað á aðalhæð.  Lýsing hefur verið endurnýjuð undanfarin ár og loft einnig. ***

Aðalhæð:
Komið er inn í forstofu með flísum á gólfi og miklu skápaplássi.
Gestasalerni er flísalagt með fallegri innréttingu og opnanlegum glugga.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu með miklu skápaplássi og er í opnu og björtu rými.  Harðparket á gólfi.
Stofa / sjónvarpsstofa er andspænis borðstofu. Útgengt er út á svalir af aðalhæð.

Neðri hæð:
Svefnherbergin eru þrjú með harðparketi á gólfi.  Fataskápar í hjónaherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari, upphengdu salerni og fallegri hvítri innréttingu með speglaskáp.
Rúmgott þvottahús og útgengt er út á lóð um hurð sem er undir stiganum.

Efsta hæð:
Tvö svefnherbergi eru á efstu hæð, harðparket á gólfum og hvíttaður panill í lofti.
Möguleiki að breyta í opið stofurými eins og sjónvarpsstofu, eins og var áður.

Garðurinn er neðan við húsið og þar er kaldur geymsluskúr.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
--------------------------------------------------------------



 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.