Fossvegur 6, 800 Selfoss
49.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
73 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2001
Brunabótamat
56.350.000
Fasteignamat
46.900.000

LANDMARK fasteignamiðlun ehf. og Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali (s: 690 3111 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Virkilega falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi við Fossveg 6 á Selfossi. Eignin er skráð 2ja herbergja en er nýtt sem 3ja herbergja í dag. Geymsla innan íbúðar með glugga er nýtt sem annað svefnherbergið. Húsið er staðsteypt, klætt að utan með litaðri álklæðningu og er litað járn á þaki.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT OG ALLAR FREKARI UPPLÝSINGAR

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í forstofu með fataskáp. Á vinstri hönd við inngang er forstofuherbergi með glugga, fataskápur (þetta rými er skráð sem geymsla / þvottahús skv. teikningum). Frá forstofu tekur við gangur. Á hægri hönd er rúmgott svefnherbergi með fataskáp með miklu skápaplássi. Flísalagt baðherbergi með sturtu, snyrtilegri innréttingu, tengi fyrir þvottavél. Björt og rúmgóð stofa með útgangi út á svalir með fallegu útsýni. Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu, ísskápur og uppþvottavél fylgja með í kaupunum en eyjan fylgir ekki. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Íbúðin hefur aðgang að sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu ásamt sameiginlegri geymslu. Lóðin er gróin og innkeyrslan er malbikuð.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Andri Sigurðsson Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða [email protected]
 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.