Höfðastígur 20, 415 Bolungarvík
52.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í tvíbýlishúsi
4 herb.
151 m2
52.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1966
Brunabótamat
64.810.000
Fasteignamat
35.150.000

LANDMARK kynnir:  Glæsileg 4ra herbergja,  151,3 fm efri sérhæð með bílskúr í tvíbýlishúsi á frábærum útsýnisstað í Bolungarvík.  Íbúðin er mikið endurnýjuð á afar smekklegan hátt.  Íbúðarrými 119 fm og bílskúr 32,3 fm. Gólfhiti.  EIGNIN GETUR VERIÐ AFHENT UM MÁNAÐARMÓTIN MAÍ/JÚNÍ.

*** Bókið skoðun hjá Freyju Rúnars Lgf, s. 694-4112 eða [email protected] ***

Forstofa er á 1. hæð og þaðan er stigi upp í íbúðina.
Hol með flísum á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergin eru þrjú og öll flísalögð með fataskápum.
Stofan er björt og falleg með flísalagt gólf og þaðan er útgengt út á rúmgóðar suðursvalir með útsýni.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu með innbyggðum tvöföldum ísskáp og frysti ásamt eldhúseyju með span-helluborði.  Borðkrókur í eldhúsi.
Þvottahús með innréttingu er inn af eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og steyptri sturtu með glervegg.

Bílskúrinn er rúmgóður með rafdrifinni bílskúrshurð og annarri hurð norðan meginn. Möl í bílaplani framan bílskúrs.

Sér rafmagns- og hitamælir fyrir hvora eign.  Lóðin er stór og snyrtileg.

Upplýsingar veita:
Freyja Rúnarsdóttir Lgf í síma 694-4112 eða [email protected]
Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]



 

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.