Mosavegur 6, 806 Selfoss
30.900.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
47 m2
30.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
27.950.000
Fasteignamat
22.650.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 kynna:
Fallegur og vel skipulagður 40,4 fm sumarbústaður auk 7,1 fm rislofts í hinu vinsæla sumarhúsahverfi í Úthlíð. 
Tvö svefnherbergi eru á aðalhæð og svefnrými í rislofti - gisting fyrir amk 6 manns.   
Fallegt útsýni.  Geymsluskúr við hlið hússins.

Örygglishlið eru inn á svæðið sem er kynnt með hitaveitu. 
Öflugt sumarhúsafélag er rekið í Úthlíð og þar er að finna 9 holu golfvöll hjá Golfklúbbi Úthlíðar og veitingastað í Réttinni.  Stutt er á Geysi, Reykholt, Flúðir, Laugarás og Laugarvatn og er svæðið um 100 km frá höfuðborgarsvæðinu.


Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

Forstofa er með fatahengi
Svefnherbergin eru tvö með 150 cm rúmi í hvoru þeirra, fataskápum og harðparketi á gólfi.
Eldhúsið er með hvítri snyrtilegri innréttingu.
Baðherbergið er með sturtu og innréttingu.  Dúkur á gólfi.
Stofan og borðstofan eru í opnu rými með harðparketi á gólfi.  Útgengt út á verönd.

Risloftið er rúmgott og þar eru tvö 90 cm rúm og sófi. 

Verönd er austan, sunnan og vestan meginn við húsið.  Heitur pottur (hitaveituskel) á verönd.

Ný rotþró sett upp 2021.  Húsið stendur á 5.000 fm leigulóð. Lóðarleiga árið 2025 var um 154.000 kr.

Nánari upplýsingar veitir Sveinn Eyland Lgf í síma 6 900 820 og [email protected]
----------------------------------------------------------

 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.