Garðabraut 45, 300 Akranes
54.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
113 m2
54.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1973
Brunabótamat
49.050.000
Fasteignamat
51.100.000
Opið hús: 18. júní 2026 kl. 17:30 til 18:00.

Opið hús: Garðabraut 45, 300 Akranes, Íbúð merkt: 01 03 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 18. júní 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / [email protected] kynna:

Bjarta og rúmgóða fjögurra herbergja 113,0 fm endaíbúð á 3. hæð við Garðabraut 45 á Akranesi, í fjölbýlishúsi sem hefur fengið umfangsmikið utanhússviðhald á síðustu árum. Eigninni tilheyrir auka herbergi í kjallara sem er 20,9 fm að stærð. Sér inngangur er í íbúðina af svölum. Íbúðin er með þremur góðum svefnherbergjum og rúmgóðu alrými með eldhúsinnréttingu sem endurnýjuð var fyrir nokkrum árum ásamt innihurðum, harðparketi og baðinnréttingu. Fallegt útsýni er úr íbúðinni og góðar svalir í suður. Frábær staðsetning í örstuttu göngufæri við grunnskólann Grundarskóla, leikskóla og Akraneshöllina íþróttamiðstöð.

Íbúðin er 92,1 fm og geymsla/herbergi í kjallara er 20,9 fm, samtals birt stærð 113,0 fm. Eignin skiptist í anddyri, geymslu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu og geymslu/herbergi í kjallara. 

✅ Björt og rúmgóð fjögurra herbergja íbúð
✅ Auka herbergi/geymsla í kjallara 
✅ Sér inngangur af svölum

Umfangsmikið utanhússviðhald á húsinu árin 2021 og 2022
✅ Frábær staðsetning miðsvæði á Akranesi


Nánari lýsing
Forstofa: Fataskápur, harðparket á gólfi. 
Alrými: Með eldhúsi, stofu og borðstofu í sameiginlegu rými, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í vestur. 
Eldhús: Svört innrétting með góðu geymsluplássi, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir yfir og tengi fyrir uppþvottavél. Góð eyja í eldhúsi sem skúffum. 
Svefnherbergi: Eru þrjú talsins, öll nokkuð rúmgóð, stór fataskápur í hjónaherbergi,  fatahengi í öðru barnaherberginu og minni skápur í hinu. 
Baðherbergi: Með salerni, baðinnréttingu, baðkari með sturtu yfir. Fyrir innan er opið að þvottaherbergi með innréttingu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi. 
Geymsla/Herbergi: Staðsett í kjallara með tveimur opnanlegum gluggum og harðparketi á gólfi. Sameiginleg salernisaðstaða. Hjóla- og vagnageymsla í sameign.  

Húsfélag og framkvæmdir
Á árunum 2021 og 2022 fóru fram um umfangsmiklar utanhússviðgerðir skv. útboðslýsingu Verkís. Húsið var háþrýstiþvegið, múrviðgert og málað í ljósgráum lit, auk þess sem skipt var um gler og opnanleg fög í fjölda íbúða og sameign. Heildarkostnaður framkvæmda nam um 26,7 m.kr. sem hefur bætt ástand hússins verulega. Framundan eru minni viðhaldsverkefni og endurbætur á sameign og lóð, m.a. varðandi leiksvæði, girðingu, lagnir og almennt viðhald.

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi en hún er í útleigu í dag. 

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / [email protected]
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali – 823-2600 / [email protected]
Láttu okkur sjá um söluna fyrir þig – við veitum þér faglega söluráðgjöf

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.