Strönd , 851 Hella
44.700.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
73 m2
44.700.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
43.300.000
Fasteignamat
37.750.000

LANDMARK kynnir:  Fallegt 73,1 fm sumarhús við Strandarvöll, golfklúbbs Hellu við Strönd.  Í húsinu eru tvö svefnherbergi. Inniveggir eru hvíttaðir sem gerir húsið bjart og fallegt.  Mjög gott skipulag og frábær staðsetning á Suðurlandinu, steinsnar frá Hellu og Hvolsvelli.  Allt innbú getur fylgt.

Forstofa er með parketi á gólfi og hengi
Svefnherbergin tvö eru með parketi á gólfi og fataskápum.
Eldhúsið er með parketi á gólfi og fallegri viðarinnréttingu .
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými þaðan sem útgengt er út á verönd með heitum potti.  Útsýni er úr húsinu og af pallinum. Kamína er í stofu sem er með mikilli lofthæð.
Baðherbergið er með sturtu og handklæðaofni og þaðan er útgengt út á veröndina.
Rúmgott svefnloft er í húsinu með opnanlegum glugga.
Geymsla er nokkuð rúmgóð og þar er hitainntakið og stýringin fyrir heita pottinn.

Veröndin er í kringum pottinn sem er hitaveitupottur.  Lóðin er grasilögð og er útsýni til golfvallarins af lóð og frá húsi.  Mjög skemmtileg staðsetning.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
---------------------------------------------------------

 

Heimili fasteignasala og Landmark fasteignamiðlun eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteigasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.