Móbergsskarð 8 - íbúð 202, 221 Hafnarfjörður
125.600.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjórbýli
4 herb.
154 m2
125.600.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
63.550.000

Landmark fasteignamiðlun kynnir í einkasölu: 

Nýja bjarta og afar fallega fjögurra herbergja 154,7 m2 íbúð með sér inngangi og bílskúr í glæsilegu fjögurra íbúða fjölbýlishúsi við Móbergsskarð 8 í Hafnarfirði. Gengið er inn beint frá innkeyrslu. Eignin er einstaklega vel staðsett í Skarðshlíðinni næst innst í botnlanga mestmegnis innan um sérbýli. Íbúðarrými er 130,4 m2 og bílskúr er 24,3 m2.

*Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum. Gólfhiti með sér stýringu í hverju herbergi. 
*Mikil lofthæð í alrými. 
*Vandaðar innréttingar frá HTH, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og glæsilegur marmari á borðplötum frá S Helgasyni. 
*Loftskiptikerfi sem eykur loftgæði, dregur úr rakasöfnun, endurnýtir varma og sparar orku. 
*Sér inngangur, innkeyrsla og gögnuleiðir hellulagðar með snjóbræðslu.
*Afar vönduð og glæsileg klæðning á húsinu. 
*Bílskúr með sér bílastæði fyrir framan.

Íbúðin er tilbúin til afhendingar við kaupsamning.

Bókið skoðun - sýnum samdægurs.

Sækja HÉR söluyfirlit samstundis
Skoða HÉR söluvef verkefnis


Nánari lýsing: 
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp. 
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Svefnherbegi III Hjónaherbergi er rúmgott með innbyggðum fataskápum, harðparket á gólfi. 
Stofa og eldhús er í björtu og rúmgóðu opnu rými með mikilli lofthæð, harðparket á gólfi, útgengi á svalir. 
Eldhúsinnrétting er dökk brún og grá frá HTH með glæsilegri marmara borðplötu, innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, bakarofni í vinnuhæð, eyju með span helluborði. 
Baðherbergi er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með dökk brúnni innréttingu, glæsilegri marmara borðplötu, vegghengdum skáp, handklæðaofni á vegg, upphengdu salerni, sturtu með innbyggðum blöndunartækjum og glerskilrúmi, þvottavélainnrétting með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
Bílskúr er með rafdrifinni bílskúrshurð.

Um er að ræða afar fallega og vandaða fjögurra herbergja íbúð með sér inngangi  í glæsilegu fjórbýli við Móbergsskarð 8 í Hafnarfirði. Sjá nánar skilalýsingu eignar. 

Húsameistari ehf., f.h. Heimsali ehf. er framkvæmdaraðili verkefnisins. Starfsmenn og samstarfsaðilar Húsameistara hafa áratuga reynslu í hönnun og byggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á Íslandi.

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig. Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.