Austurkór 79, 203 Kópavogur
74.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
93 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2013
Brunabótamat
41.600.000
Fasteignamat
65.400.000
Opið hús: 22. september 2024 kl. 13:00 til 13:30.

Opið hús: Austurkór 79, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 02 07. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

LANDMARK fasteignamiðlun, Júlíus Jóhannson, lögg. fasteignasali (s: 823-2600 / [email protected]) og Monika Hjálmtýsdóttir lögg. fasteignasali (s: 823-2800 /[email protected]) kynna:

Fallega og vel skipulagða fjögurra herbergja 93,0 m2 íbúð á efri hæð með sér inngangi við í Austurkór 79 í Kópavogi. Gott skipulag er á íbúðinni þar sem hver fermeter nýtist vel, hún er með þremur svefnherbergjum, sér þvottahúsi og geymslu innan íbúðar. Út frá stofu eru skjólgóðar svalir í suður. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Lóð fyrir utan sérafnotafleti og bílaplan fyrir framan fjölbýlishúsið er í óskiptri sameign. 
 
Eignin skiptist í forstofu, gang, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, eldhús og stofu og svalir. 
Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands: Íbúð er 93,0 m2 merkt 01-0207.

Sækja söluyfirlit strax
 
Nánari lýsing
Forstofa er með flísum á gólfi og fatahengi. 
Gangur er með parketi á gólfi. 
Svefnherbergi I er með fataskáp, parket á gólfi. 
Svefnherbergi II er með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi III (hjónaherbergi) er með stórum fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, baðkari með sturtu yfir, baðinnréttingu með speglaskáp yfir og vegghengdum skáp, handklæðaofn á vegg. 
Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkar, vegghengdum efri skápum, góðu vinnuborði með vaski, flísar á gólfi. 
Eldhús og stofa er í opnu og björtu rými, parket á gólfi. Í eldhúsi er eikar innrétting með tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, bakarofn, keramik helluborði og lofthengdum gufugleypi yfir, parket á gólfi. Stofa er björt og þaðan er útgengi á skjólgóðar svalir í suður. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.