Móaflöt 19, 210 Garðabær
165.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
178 m2
165.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1967
Brunabótamat
92.100.000
Fasteignamat
119.900.000

***Móaflöt 19, 210 Garðabær***

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús lgf kynna í einkasölu Móaflöt 19, Garðabæ. Virkilega fallegt fjögurra herbergja raðhús á þessum vinsæla stað. Eignin er 178,2 fm að stærð og þar af er bílskúr 42,7 fm. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, bæði að utan og innan. Búið er að koma fyrir gólfhita í flest öllum rýmum hússins. Innangengt er úr íbúð út í bílskúr.

Allar nánari upplýsingar eru hjá Jens Magnúsi fasteignasala í síma 8931984 eða [email protected]


Nánari lýsing:
Komið er inn í fallegt anddyri með glæsilegum flísum á gólfi og sérsmíðuðum fataskáp. Þaðan er gengið inn í rúmgott eldhús með glæsilegri sérsmíðaðri innréttingu með eyju. Borðplötur úr steini, undirlímdur vaskur og stór SMEG gaseldavél með fallegum háfi þar yfir. Úr eldhúsi er komið inn í bjarta stofu með fallegum stórum gluggum. Svefnherbergin eru 3 og öll með flísar á gólfi (það er ekki gólfhiti í stærra barnaherbergi og aðal svefnherbergi). Baðherbergið er með fallegri og stórri innréttingu, upphengdu salerni og sturtu. Þvottahúsið sem er í bílskúr er rúmgott, með epoxy á gólfi og nýlegum innréttingum.

Bílskúrinn er rúmgóður með epoxy á gólfi og stórri bílskúrshurð með opnara. 

Mikið búið að endurnýja í eigna á undanförnum árum.
Listi yfir framkvæmdir liggur fyrir hjá fasteignasala.

Útisvæðið er snyrtilegt og garðurinn er í góðri rækt, bæði að framan og að aftan. Baklóðin er stór og búið að setja upp háa girðingu allan hringinn.

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignsala 
Jens Magnús Jakobsson, í síma 8931984 eða [email protected]


***Vegna mikillar sölu undanfarið get ég bætt við eignum á skrá***
***Kem og verðmet þína eign þér að kostnaðarlausu***

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.