Rjúpufell 21, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt)
61.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
99 m2
61.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1974
Brunabótamat
50.350.000
Fasteignamat
55.000.000

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Fallega og rúmgóða 101,4 fm,  4ra herbergja íbúð á 3. hæð með stórum, yfirbyggðum svölum til suðurs í vel viðhöldnu fjölbýli með viðhaldsléttri klæðningu við Rjúpufell 21 í Reykjavík.  Búið er að endurnýja eldhús og baðherbergi.  Húsinu hefur verið vel viðhaldið í gegnum árin og er t.a.m. síðustu ár búið að endurnýja teppi í sameign, endurnýja glugga á framhlið hússins, yfirfara og lagfæra klæðningu og mála þak.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.  Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]


Eignin er skráð 99,3 fm samkvæmt HMS og skiptist í íbúð 94,7 fm og geymslu 4,6 fm.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa / hol
með fataskáp og parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gófli, útgengt út á lokaðar svalir.
Eldhús var endurnýjað 2017 af fyrri eiganda, falleg innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa, bakaraofn+örbylgjuuofn í vinnuhæð, keramik helluborð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er með góðum skápum og parket á gólfi.
Tvö önnur svefnherbergi, mjög rúmgóð með parket á gólfi, annað þeirra með fataskáp.
Baðherbergi var endurnýjað 2018, flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, walk in sturta, handklæðaofn og hiti í gólfi.
Þvottahús innaf eldhúsi með innréttingu, vaski, þvottasnúrum og dúk á gólfi.
Sérgeymsla (4,6 fm) er í sameign.
Í sameign er einnig sameiginleg vagna-og hjólageymsla.

Sameignin er mjög snyrtileg og vel við haldin. Sameiginlegur garður og rétt hjá húsinu er leikvöllur. Vinsæl og fjölskylduvæn staðsetning, stutt er í skóla, leikskóla, íþróttir, verslanir, þjónustu og sundlaug. 

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.