Brekkuás 11, 221 Hafnarfjörður
76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
95 m2
76.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2012
Brunabótamat
56.180.000
Fasteignamat
71.550.000
Opið hús: 22. september 2024 kl. 12:00 til 12:30.

Opið hús: Brekkuás 11, 221 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 02 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. september 2024 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

LANDMARK kynnir:  Virkilega falleg 3ja herbergja, 95 fm íbúð á 3. og efstu hæð í lyftuhúsi á fallegum útsýnisstað í Áslandinu í Hafnarfirði.  Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu. Smelltu hér fyrir söluyfirlit

Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, eyju með helluborði og gufugleypi og parketi á gólfi.
Stofan og borðstofan eru í opnu rými með eldhúsi og þaðan er útgengt út á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni.
Svefnherbergin tvö eru með hvítum fataskápum og parketi á gólfi.  Stærra herbergið er mjög rúmgott.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með fallegri hvítri innréttingu, baðkari og sér sturtu.  Þvottahús er inn af.

Á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar (8,8 fm ) ásamt sameiginlegum rýmum og bílageymslu.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.