Tröllakór 18, 203 Kópavogur
89.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
122 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2008
Brunabótamat
62.890.000
Fasteignamat
84.150.000
Opið hús: 23. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Tröllakór 18, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. september 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

LANDMARK kynnir:  Falleg 4ra herbergja 122,7 fm útsýnisíbúð á fjórðu og efstu hæð innst í botnlangagötu í Kórahverfi Kópavogs.  Stæði í bílageymslu fylgir.  Glæsilegt útsýni til austurs og suðurs.  Frábært fjölskylduhverfi þar sem skóli, leikskóli og íþróttaaðstaða er í göngufæri.  Einnig stutt í hestamannasvæði og náttúruperlur. Smelltu hér fyrir söluyfirlit

*** Nýlega búið að mála glugga að utan, endurnýja ljós í göngum og skipta um hurð í bílageymslu.***

Forstofa er flísalögð með fataskáp.  Rúmgott hol er inn af forstofu.
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými og þaðan er útgengt út á 17,5 fm svalir með glæsilegu útsýni.  
Eldhúsið er með viðarinnréttingu og borðkróki.  
Svefnherbergin eru þrjú öll með fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, baðkari, handklæðaofni og fallegri innréttingu.
Þvottahús er innan íbúðar með góðri innréttingu.

Flísar eru á gólfum og dúkur.  Í sameign er sérgeymsla íbúðar ásamt sameiginlegum rýmum.  
Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir íbúðinni.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------


 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.