Þrastarhöfði 5, 270 Mosfellsbær
82.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
107 m2
82.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2006
Brunabótamat
61.890.000
Fasteignamat
77.350.000

Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:

Vel skipulögð þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með glæsilegu útsýni við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ. Eigninni tilheyrir stæði í bílageymslu.
 
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, svalir og geymslu.

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með fataskápum, flísar á gólfi
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa og borðstofa í opnu rými. Stofan var stækkuð með því að fjarlægja tvo veggi og þar með eitt svefnherbergi sem möguleiki er á að setja upp aftur. Úr borðstofu er glæsilegt útsýni en þaðan er einnig útgengt út á svalir sem snúa í vestur.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðu skúffu- og skápaplássi. Bakaraofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir og rými fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum.
Barnaherbergi: Bjart og fallegt barnaherbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, sturta, baðkar, klósett og upphengd innrétting með handlaug.
Þvottahús: Inn af baðherbergi er mjög rúmgott þvottahús, flísar á gólfi.
Geymsla: Eigninni tilheyrir geymsla í kjallara hússins, skráð 7,1m2
Bílageymsla: Sérmerkt stæði í bílageymslu tilheyrir eigninni og þar er búið að setja upp bílahleðslustöð.
Sameign: Í sameign hússins er hjóla- og vagnageymsla.

Eignin er einstaklega vel staðsett og stutt í alla helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnsóla, sundlaug, matvöruverslanir, Golfklúbb Mosfellsbæjar, Blik Bistro og fleira.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson
, löggiltur fasteignasali, í síma 693 9258 eða [email protected]


 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.