Gerðhamrar 36, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
94.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
144 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1987
Brunabótamat
62.050.000
Fasteignamat
85.700.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, lögg. fasteignasali í síma 663 2300 / [email protected] kynna í einkasölu mikið endurbætta 3ja - 4ra herbergja neðri sérhæð í tvíbýli með skjólgóðum suðurgarði á frábærum stað í við Gerðhamra í Grafarvogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Stór upphitaður geymsluskúr og afgirt timburverönd með heitum og köldum potti.

Birt stærð séreignar er 144,3 fm
samkvæmt HMS en þar af er geymsla innan íbúðar 10,7 fm. 

Smellið hér til að fá sent söluyfirlit en annars eru veittar frekari upplýsingar í síma 663 2300 / [email protected]
 
Nánari lýsing
Forstofa,
flísalögð með gólfhita og fataskáp.
Stofa og borðstofa, björt og rúmgóð og útgengt á suðurverönd.
Eldhús með vandaðir L laga innréttingu og eldhúseyju, tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi með fataskápu.
Barnaherbergi I
Barnaherbergi II með fataskáp
Baðherbergi með glugga, flísalagt með innréttingu, upphengt salerni, hornbaðkari og walk-in sturtu.
Þvottahús með innréttingu og skolvask.

Eignin hefur fengið gott og reglulegt viðhald jafnt innan sem utan en húsið er nýlega múrviðgert og málað og þak endurbætt. Að innan eru nýleg gólfefni.

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum [email protected] en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.