Dvergabakki 26, 109 Reykjavík
66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
107 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1971
Brunabótamat
47.500.000
Fasteignamat
56.850.000

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG SVEINN EYLAND LGF. S. 6900 820 KYNNA:
Um er að ræða fimm herbergja 107.8 fm endaíbúð á 2.hæð í mikið endurnýjuðu fjölbýlishúsi á góðum stað í Bökkunum í Breiðholti.
Íbúðarrými sjálft er 78.5 fm auk 4.7 fm geymslu í kjallara og svo er 24.6 fm íbúðarherbergi í kjallara með eldhúsinnréttingu og aðgengi að sameiginlegu baðherbergi með salerni og sturtuklefa.
Húseignin er öll hin snyrtilegasta og hefur verið tekin í gegn á síðustu árum og þá er nýlega búið að skipta um nánast alla glugga og gler í íbúð.
Íbúð var endurnýjuð að hluta fyrir ca. 3 árum, baðherbergi, eldhúsinnrétting, innihurðar og gólfefni.

Eignin er í útleigu í dag með góðum leigutekjum (tveir leigutakar) og er hægt að taka yfir núgildandi leigusamninga við kaupsamning.


Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Eignin skiptist í:
Forstofu/hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, íbúðarherbergi með eldhúsinnréttingu og sérgeymsla í kjallara.
Sameiginlegt þvotta- og þurrkherbergi í kjallara ásamt hjóla/vagnageymslu.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa/hol með innbyggðum fataskápum og úr holi er gegnið í önnur rými íbúðar.
Stofa/borðstofa er bjart rými með stórum gluggum á tvo vegu og er útgengt á suð-vestur svalir úr stofurými.
Eldhús er snyrtilegt með hvítri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum og eru flísar á vegg milli skápa, tengi er fyrir uppþvottavél í innréttingu og borðkrókur í byrjun eldhúss.
Hjónaherbergi er nokkuð rúmgott með góðum fataskápum og tvö barnaherbergi sem að eru skápalaus.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, baðkar með sturtuhengi, innrétting með skúffum undir vask og speglaskápur á vegg ofan við vask, tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Íbúðarherbergi í kjallara er mjög rúmgott með gluggum, ágætis eldhúsinnrétting er í herberginu og er sértengi fyrir þvottavél í þvottaherbergi. Aðgegni er að sameiginlegu baðherbergi með sturtu í kjallara.
Sérgeymsla á sameignlegum gangi sem að tilheyrir íbúð.
Mjög gott sameiginlegt rými í kjallara þar sem að er þvottaherbergi, þurrkherbergi og hjóla/vagnageymsla.
Gólfefni eignar: Harðparket og flísar á gólfum eignar.

Sameign er mjög snyrtileg og vel um gengin. Gott útisvæði er fyrir framan hús með leiktækjum.
Mjög stutt er í skóla, leikskóla, verslun og alla þjónustu í Mjóddinni og í útivistarparadísina Elliðaárdal.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.