Iðavellir , 806 Selfoss
61.000.000 Kr.
Sumarhús
4 herb.
97 m2
61.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
51.650.000
Fasteignamat
42.200.000

*** Bókið skoðun í síma 896-2312 eða [email protected] ***

LANDMARK kynnir:
  Fallegt 97 fm, 4ra herbergja sumarhús á 3,7 ha eignarlóð í nágrenni Geysis í Haukadal, þar af 17,6 gestahús.  Fallegt útsýni til allra átta. Af landinu sést yfir á golfvöllinn við Geysi. 

*** Skv byggingaskilmálum má byggja tvö frístundahús á lóðinni þar sem má fylgja 20 fm svefnskála / geymslu.***

Forstofa er flísalögð með fatahengi.
Baðherbergið er flísalagt að hluta með sturtuklefa, innréttingu og handklæðaofni.  Opnanlegur gluggi er í baðherbergi.
Svefnherbergin eru þrjú, öll með parketi á gólfum.  Aukin lofthæð er í herbergjum.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu og eldhúseyju með helluborði.  
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og aukinni lofthæð.  Útgengt er út á verönd.

Gestahúsið er 17,6 fm og þar er svefnherbergi, baðherbergi með sturtu og einnig aðstaða fyrir þvottavél.

Steypt plata er á lóð fyrir körfuboltavöll.  Möl er í bílaplani.  Verönd er í kringum húsið með grindverki.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------





 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.