Klettaberg 34, 221 Hafnarfjörður
94.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
155 m2
94.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2000
Brunabótamat
72.550.000
Fasteignamat
84.550.000

LANDMARK kynnir:  Mjög falleg og björt 3ja til 4ra herbergja, 155,8 fm íbúð, þar af 31,5 fm bílskúr í fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Hafnarfirði. Íbúðin er með sérinngangi og er í enda götu.  

*** Smelltu hér til að fá söluyfirlit ***

Forstofa er flísalögð með fataskáp. Hol / gangur er með parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö í núverandi skipulagi.  Tvö voru sameinað í eitt rúmgott herbergi auk hjónaherbergis sem er með parketi á gólfi og fataskápum
Stofan og borðstofan eru í opnu og björtu rými með parketi á gólfi.  Fallegt útsýni til suðvesturs af rúmgóðum svölum.
Eldhúsið er með upprunalegri innréttingu og tækjum og flísum á gólfi.  Góður borðkrókur er í eldhúsi.
Þvottahús er inn af eldhúsi.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu og baðkeri með sturtuaðstöðu.  Opnanlegur gluggi á baði.

Bílskúrinn er 31,5 fm er með sjálfvirkum hurðaopnara með vaskborði og tengi fyrir slöngu með heitu og köldu vatni.  7,9 fm geymsla er inn af bílskúr með hillum.

*** Gluggar málaðir að utan 2022 og þak yfirfarið fyrir nokkrum árum, blettað og naglar endurnýjaðir þar sem þurfti ***

Sér hitamælir er fyrir íbúðina og bílskúrinn.  Snjóbræðslukerfi er í útitröppum og svalagöngum og er það tengt við millihitara sem nýtir hita frá bakrennsli hússins.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------







 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.