Brandshús 6, 803 Selfoss
74.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
167 m2
74.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2007
Brunabótamat
86.150.000
Fasteignamat
57.400.000

Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali s:893-1984 og Landmark fasteignamiðlun kynna í sölu Brandshús 6 í Flóahreppi. Einbýlishús sem er 167,9 fm, þar af er bílskúrinn 38 fm. Húsið er byggt úr timbri með snyrtilegri standandi timbur klæðningu. Bárujárn er á þaki. Gluggar og vindskeiðar eru úr timbri.

Bókið einkaskoðun hjá fasteignasala í síma 8931984 eða [email protected]
Smelltu hérna fyrir söluyfirlit

Sælureitur í sveitinni í skemmtilegu og huggulegu hverfi rétt við Félagslund, þar sem eru nokkur einbýlishús 

Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp. Þaðan er komið inn í opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu með parketi á gólfi. Þaðan er útgengt á stóra og skjólgóða verönd. Fjögur rúmgóð svefnherbergi með fataskápum eru í húsinu og parket er á gólfum. Baðherbergið er snyrtilegt og var endurnýjað 2019, þar er sturta, salerni og falleg innrétting. Þvottahús er með flísum og innréttingu, þaðan er innangengt í bílskúr. Bílskúrinn er með bílskúrshurð og máluðu gólfi.

Gólfhiti er í húsinu. Parket er á öllum rýmum nema á baðherbergi er Epoxy og í forstofu og þvottahúsi eru flísar.

Heilt á litið virkilega skemmtileg eign í sveitinni rétt fyrir utan Selfoss. Aðeins um 10-15 mín akstur á Selfoss.

Húsið stendur á stórri leigulóð sem er 1975 fm og er gróin. Gróðurhús er á lóðinni og fylgir.

Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun er hjá Jens Magnúsi lgf. í síma 893-1984 eða [email protected]

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.