Skálholtsbraut 17, 815 Þorlákshöfn
95.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
6 herb.
225 m2
95.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1972
Brunabótamat
116.750.000
Fasteignamat
89.850.000

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali kynna virkilega fallegt og vel staðsett 6 herbergja einbýlishús miðsvæðis í Þorlákshöfn. Eignin er samtals 225,9 fm. þar af er íbúðarhluti 193,1 fm. og bílskúr 32,8 fm. Umhverfis húsið er gróinn og fallegur garður með heitum potti og sólpalli í suðvestur. Eignin er í fallegu og grónu hverfi í Þorlákshöfn.

Bókið einkaskoðun hjá fasteignasala í síma 893-1984 eða [email protected]
smelltu hérna fyrir söluyfirlit


Lýsing eignar: Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp og gestasalerni með upphengdu salerni og innréttingu. Þaðan er komið inn í borstofu/stofu sem eru í einu björtu rými með parketi á gólfi, þaðan er farið inn í eldhús með flísum á gólfi, nýlegri grárri innréttingu og opnum borðkrók. Inn af eldhúsi er þvottahús með útgengi og geymsla með flísum á gólfi. Á svefnherbergisgangi eru 5 svefnherbergi, misstór og öll með parketi á gólfi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni sturtu og góðri innréttingu. Við endan á ganginum er gengið inn í stóra sólstofu með flísum á gólfi og kamínu. 
Gólfhiti er mest megnis í öllum gólfum hússins.

Lóð: Gróin og fallega frágengin 784 fm. lóð. Framan við húsið er hellulögð stétt, verönd og steypt innkeyrsla. Á suðuvesturhlið hússins er sólpallur með heitum potti.

Um er að ræða virkilega fallega eign sem búið er að endurnýja að stórum hluta og var það gert árið 2022.

Húsið er vel staðsett í hjarta Þorlákshafnar þar sem stutt er í verslun, skóla, leikskóla, íþróttamiðstöð og sundlaug.

Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir:
Jens Magnús Jakobsson, löggiltur fasteignasali, í síma 893 1984 eða [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.