Eyrarbraut 24, 825 Stokkseyri
60.500.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
133 m2
60.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
57.650.000
Fasteignamat
51.100.000

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús kynna í einkasölu Eyrarbraut 24, 825 Stokkseyri. Þetta er virkilega sjarmerandi einbýli á einni hæð. Eignin er fimm herbergja, byggð úr timbri og skráð skv. fasteignaskrá 133,7 fm. Stór pallur með heitum potti er fyrir framan húsið. Á bakvið er búið að steypa stórt plan. 

Bókið einkaskoðun hjá fasteignasala í síma 8931984 eða [email protected]
Smelltu hérna fyrir söluyfirlit

Að innan:

Forstofa: Rúmgóð með flísum á gólfi og skáp.
Borðstofa/stofa: Er með uppteknum loftum og parketi á gólfi.
Eldhús: Rúmgott með góðum borðkrók og parketi á gólfi.
Þvottahús: Er innaf eldhúsi, þaðan er hægt að ganga út á baklóð eignarinnar.
Herbergjagangur: Er með parketi á gólfi og skrifborðs plássi í endann.
Svefnherbergi: Eru fjögur með parketi á gólfum og skápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Er flísalagt, með snyrtilegri innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.

Á pallinum fyrir framan húsið er búið að útbúa óeinangrað rými "Kósý Stofu" sem kemur virkilega skemmtilega út með tengingu við pallinn.
Á baklóð er geymsluskúr sem nýtist mjög vel og er ekki inn í fermetratölu hússins.

Stutt er í náttúruna á Stokkseyri og alla þjónustu sem bærinn hefur upp á að bjóða, eins og leikskóla og skóla.

Þetta er virkilega áhugaverð eign sem vert er að skoða og sjá hvað hefur upp á að bjóða.

Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson, s:893-1984 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.