LANDMARK Fasteignamiðlun kynnir:
Um er að ræða nýja fallega og vel skipulagða 75,8 fm íbúð á 4. hæð með mikilli lofthæð og stæði í bílakjallara í nýju og virkilegu vönduðu fimm hæða lyftufjölbýli við Kuggavog 26 í Vogabyggð í Reykjavík þar sem stutt er í leik- og grunnskóla og í alla þjónustu. Falleg náttúra er allt um kring og stutt er í ýmiss konar útivistarmöguleika.
Íbúðin er fullfrágengin að innan með vönduðu innréttingum frá HTH, harðparket á gólfi fyrir utan flísar á baðherbergi.
Öll tæki í eldhúsi eru frá AEG og Grohe blöndunartæki í eldhúsi og á baðherbergi. 3,05 m lofthæð.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING,
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.Nánari lýsing eignar:Forstofa með góðum fataskáp.
Stofa og eldhús í opnu björtu rými, stórir gluggar og mikil lofthæð, útgengt út á 46,6 fm svalir/verönd til suðurs.
Eldhús er með bakarofn í vinnuhæð, spanhelluborði og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, steinplötur úr kvarts á borðum.
Svefnherbergi I (15,1 fm) er mjög rúmgott með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og á tveimur veggjum, vaskur og borðplata heil sambyggð eining, spegill með baklýsingu og walk in sturta. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara (gert ráð fyrir barkalausum þurrkara).
Sér stæði í lokaðri bílageymslu ásamt sérgeymslu. Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara. Birt stærð séreignar er 75,8 fm sem skiptist í íbúðarrými 70,2 fm og sérgeymslu 5,6 fm skv FMR.
Kuggavogur 26 er nýtt og glæsilegt fjölbýli með lyftu og lokuðum bílakjallara, staðsteypt, einangrað að utan og klætt með báruáli og/eða sléttu áli. Gluggar og útihurð eru úr ál/tré.
Um er að ræða 16 íbúðir, 2ja og 3ja herbergja, vel skipulagðar sem eru 75 - 108 fm að stærð. Auk þess eru fjögur atvinnubil með sérinngangi sem búið er að sérinnrétta sem fjórar íbúðir, 4,3m lofthæð sem býður upp á mikla möguleika, t.d. svefnloft. Sérgeymsla fylgir öllum íbúðum ásamt sér stæði í bílgeymslu og er mögulegt að setja upp rafhleðslustöð við hvert stæði. Stofnhús ehf. er framkvæmdaraðili hússins sem vandar til verka og sérhæfir sig í byggingu íbúðarhúsnæðis.Skoðaðu heimasíðu um íbúðir HÉR.Upplýsingar um íbúðir og bókun á skoðunartíma veita:Þórarinn Thorarensen lögg.fasteignasali s. 770-0309 eða
[email protected]Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 690-0820 eða
[email protected]Freyja Rúnarsdóttir lögg.fasteignasali s. 694-4112 eða
[email protected]Júlíus Jóhannsson lögg.fasteignasali s. 823-2600 eða á
[email protected]Monika Hjálmtýsdóttir lögg.fasteignasali s.823-2800 eða
[email protected]Kaupandi greiðir 0,3% skipulagsgjald af brunabótamati.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA