Baldursgata 36, 101 Reykjavík (Miðbær)
49.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
53 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1938
Brunabótamat
24.600.000
Fasteignamat
43.100.000

LANDMARK fasteignamiðlun, Freyja Rúnarsdóttir og Þórey Ólafsdóttir, löggiltir fasteignasalar og félagsmenn í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 3. hæð við Baldursgötu í Reykjavík með fallegu útsýni. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.
 
Eignin skiptist í opið forrými, stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir sér geymsla í kjallara og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahús og þurrkherbergi í kjallara.
 
Birt stærð séreignar er 53,4 fm.
 

Allar frekari upplýsingar veita Freyja, löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða [email protected] og Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].
 
Nánari lýsing
Forstofa
með fatahengi, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi.
Eldhús með filmaðri innréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi (svalir á samþ. teikningum)
Svefnherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með salerni, skolvask og sturtu, dúkur á gólfi.
Geymsla í kjallara, ekki inni skráðum fm hjá FMR.
 
Húsgjöld íbúðar eru 22.738 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, ræsting sameignar sem og einnig húseigendatrygging og framkvæmdasjóður. Heildarstaða framkvæmdasjóðs er kr 1.526.041,- en þá eru engar samþykktar framkvæmdir fyrirhugaðar.

Baldursgata 36 er steinsteypt hús 4ra hæða hús auk kjallara en þá var húsið nýlega múrviðgert og endursteinað að utan, gert við þakkant og skyggni yfir útidyrahurð, skipt um þakrennur og gluggar málaðir að utan. Að innan er eignin töluvert endurbætt, nýlegt plastparket og innihurðar.
 

Allar frekari upplýsingar veita Freyja, löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða [email protected] og Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.