Gullsmári 8, 201 Kópavogur
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
4 herb.
107 m2
79.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1996
Brunabótamat
46.900.000
Fasteignamat
64.500.000

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða 3ja til 4ra herbergja útsýnisíbúð með yfirbyggðum suðaustur svölum á 6. hæð við Gullsmára 8 í Kópavogi. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.

SELJANDI OPIN FYRIR SKIPTUM Á LITLU SÉRBÝLI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU.

Birt stærð séreignar er 107,4 fm, þar af er geymsla í kjallara 6,9 fm en yfirbyggðar svalir eru ekki inni í skráðum fermetrum hjá FMR.

Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].

Eignin skiptist í forstofu og hol, tvö svefnherbergi, sjónvarpshol sem auðvelt er að breyta í herbergi, eldhús/borðstofa, stofu, baðherbergi og þvottahús innaf eldhúsi. Yfirbyggðar og upphitaðar svalir sem snúa í suðaustur. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu sem og sér geymsla í kjallara.

Lýsing:

Forstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Stofa, björt og rúmgóð, parket á gólfi og útgengt á upphitaðar yfirbyggðar svalir sem snúa til suðausturs.
Eldhús/borðstofa með viðarinnréttingu, og tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Þvottahús, innaf eldhúsi.
Svefnherbergi I með fataskápum, parket á gólfi.
Svefnherbergi II, parket á gólfi.
Sjónvarpshol í opnu rými sem breyta má í 3ja svefnherbergið, parket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt með hvítri innrétting, salerni, baðkari og sturtu.

Húsgjöld íbúðar eru 28.523 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, þrif sameignar og þrif á sorpgeymslu sem og einnig húseigenda trygging og framkvæmdasjóður.
 
Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu s.s. Smáralind, heilsugæslu, banka o.fl. Í Gullsmára 13 er starfrækt félagsmiðstöð fyrir eldri borgara þar sem ýmis þjónusta er í boði, m.a. fjölbreytt félagsstarf og matur.

Allar frekari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.