Kelduland 9, 108 Reykjavík (Austurbær)
66.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
86 m2
66.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1971
Brunabótamat
40.250.000
Fasteignamat
57.000.000
Opið hús: 23. mars 2023 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Kelduland 9, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 05 02 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 23. mars 2023 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

LANDMARK kynnir: Falleg og vel skipulögð, 4ra herbergja, 86 fm íbúð á 2. hæð á frábærum stað í Fossvoginum.  Fallegt útsýni - næg bílastæði - eftirsótt staðsetning

Nýlegar endurbætur:  Skólplagnir endurnýjaðar 2020, vesturgafl klæddur 2021 og þak málað 2022.

Forstofa er með harðparketi á gólfi.  Á gangi er rúmgóður fataskápur.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi.  
Stofan og borðstofan eru í sameiginlegu rými með harðparketi á gólfi.  Útgengt út á rúmgóðar suðursvalir.
Baðherbergið er flísalagt með sturtuklefa, fallegri innréttingu og upphengdu salerni. Tengi fyrir þvottavél.
Svefnherbergin eru þrjú talsins og eru stórir fataskápar inn í hjónaherbergi.  Harðparket á gólfum.
Sameiginlegt þvottahús á jarðhæð.

Í sameign er hjólageymsla og sérgeymsla íbúðar (5,3 fm)

Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélagsins Kelduland 5-9:  Í bígerð er að fara í múrviðgerðir á suðurhlið og gluggaskipti þar sem við á.  Í kjölfarið er stefnt á að fara í norðurhliðina.  Skýrsla frá Verksýn liggur fyrir.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
---------------------------------------------------------

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.