Opið hús: 22. mars 2023 kl. 17:00 til 17:30.Opið hús: Snæfríðargata 9, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 05 02 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 22. mars 2023 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali (s. 693 9258) og Landmark fasteignamiðlun kynna:Vel skipulögð og falleg endaíbúð í með sérinngangi við Snæfríðargötu 9 í Helgafellslandi, Mosfellsbæ. Húsið var byggt 2018 af Byggingafélaginu Bakka.
Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 2. hæð með rúmlega 16 fm. svalir út frá stofu.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, sjónvarpshol, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og sérgeymslu á jarðhæð.
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð og opin forstofa með fatahengi, flísar á gólfi.
Eldhús: Bjart og stórt eldhús, opið inn í stofu. Innrétting frá HTH með góðu skúffu- og skápaplássi, AEG blástursofn í vinnuhæð, AEG helluborð og innbyggð uppþvottavél.
Stofa/borðstofa: Rúmgóð stofa í opnu rými, útgengt út á rúmlega 16 fm. suðursvalir. Fordæmi eru fyrir svalalokun í húsinu.
Sjónvarpshol: Inn af stofu/borðstofu er gott sjónvarpshol en möguleiki væri að breyta rýminu í auka svefnherbergi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með stórum fataskápum.
Barnaherbergi: Fallegt og rúmgott barnaherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Stórt baðherbergi sem nýtist einnig sem þvottahús, flísar á gólfi og tveimur af veggjum. Góð innrétting, upphengt klósettt, baðkar með sturtu og handklæðaofn.
Sérgeymsla: Á jarðhæð hússins er 7,7fm. geymsla ásamt sameiginlegri hjóla-/vagnageymslu.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Jón Óskar Karlsson, löggiltur fasteignasali, í síma
693 9258 eða
[email protected] Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA