Andrésbrunnur 6, 113 Reykjavík (Grafarholt)
69.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
4 herb.
110 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2003
Brunabótamat
48.540.000
Fasteignamat
63.200.000

Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali kynna góða fjögurra herbergja 110,8 fm íbúð á jarðhæð ásamt stæði í lokuðu bílastæði við Andrésbrunn 6 í Grafarholti, Reykjavík. Góð afgirt verönd er út frá stofu. 

*Þakdúkur á fjölbýlishúsinu nýlega endurnýjaður.
*Þrjú svefnherbergi.
*Þvotthús og geymsla innan íbúðar.
*Góð afgirt verönd.
*Lyfta er í húsinu.

Bókið skoðun hjá [email protected] eða í síma 823-2800.


Birt stærð íbúðar er 110,8 m2, merkt 101 og stæði í bílageymslu er merkt 03-B02 skv. eignaskiptasamningi.

Forstofa er með fataskáp, flísar á gólfi.
Þvottahús er innaf forstofu, með hvítri þvottahúsinnréttingu þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaski, flísar á gólfi. 
Geymsla er inn af þvottahúsi með áföstum hillum á veggjum, málað gólf. 
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými, þaðan er útgengi á afgirta verönd í suður. 
Eldhús er með innréttingu með góðu skápa- og skúffurými, bakaraofni í vinnuhæð, helluborði og háf yfir úr burstuðu stáli, innbyggðri uppþvottavél, parket á gólfi. Rúmgóður borðkrókur í eldhúsi. 
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, parket á gólfi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með salerni, baðinnréttingu, speglaskáp yfir, baðkari og sturtu.
Svefnherbergi III (hjónaherbergi) er rúmgott með stórum fataskáp, parket á gólfi. 
Stæði í bílageymslu er í kjallara, staðsett fyrir miðju í þriggja bílastæða, innangengt í hús. 
Sameinleg hjóla og vagnageymsla í sameign. 
Sameiginlegur afgirtur garður á lóð. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.