Hrísmóar 1, 210 Garðabær
86.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
93 m2
86.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1984
Brunabótamat
42.300.000
Fasteignamat
66.200.000

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG SVEINN EYLAND LGF. S. 6900 820 KYNNA Í EINKASÖLU:
Um er að ræða glæsilega og bjarta þriggja herbergja 93.5 fm útsýnisíbúð á 10.hæð í lyftuhúsi miðsvæðis í Garðabæ.
Íbúðin hefur fengið mjög smekklega endurnýjun og er vel skipulögð, tvennar svalir og er stórbrotið útsýni úr íbúð í vestur, norður, austur og suður.
Stutt er í leikskóla, skóla, alla þjónustu, heilsugæslu og stofnbrautir.


Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

**EIGENDUR SKOÐA SKIPTI Á SÉRBÝLI Í GARÐABÆ**

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR

Íbúð skiptist í:
Forstofu/hol, alrými, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi og sérgeymslu í kjallara.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í sameign.
 
Nánari lýsing á eign:
Komið er inní forstofu/hol af stigagangi.
Alrými þaðan sem að gengið er í önnur rými eignar og er það rými nýtt í dag sem sjónvarpshol.
Stofa/borðstofa er mjög bjart rými með gluggum á tvo vegu og er glæsilegt útsýni úr stofurými til allra átta.
Eldhús er opið inní stofu og er snyrtileg hvít eldhúsinnrétting frá HTH í eldhúsi með efri og neðri skápum, innfelld lýsing undir efri skápum, innbyggð uppþvottavél í eldhúsi og er gert ráð fyrir tvöföldum ísskáp í innréttingu, tækjaskápur er inn í enda á eldhúsi, span-helluborð í eldunareyju og er Kvarz-steinn í öllum borðplötum í eldhúsi, borðplata á eldunareyju kemur vel út fyrir innréttingu og er því hægt að nota eyju til þess að sitja við. Útgengt á norð-vestur svalir úr eldhúsi.
Hjónaherbergi er nokkuð rúmgott með fataskápum og er útgengt á austur-svalir úr hjónaherbergi.
Barnaherbergi við hlið hjónaherbergis og er barnaherbergi skápalaust.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, Walk-in sturtuklefi með glerskilrúmi, vönduð blöndunartæki, vegghengt salerni, handklæðaofn, innrétting með skúffum og skápum undir baðvask, innfelld lýsing bakvið spegla ofan við vask.
Þvottaherbergi er á hægri hönd innaf forstofu með flísum á gólfi og veggjum, vinnuborð með skolvask og hillur á vegg, gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara og sameiginleg hjóla/vagnageymsla.
Mjög stórt og gott bílastæði er framan við húseign og er búið að setja upp rafhleðslustöðvar sem að tilheyra húseign.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
 
Niðurlag;
Stórglæsileg og vel skipulögð útsýnisíbúð sem að hefur fengið mjög skemmtilega endurnýjun.
Mjög stutt er í skóla, leikskóla, matvöruverslun, alla þjónustu, heilsugæslu, útivistarsvæði og stofnbrautir.
Öflugt húsfélag sem hefur góðar leigutekjur af íbúð sem er í eigu húsfélagsins ásamt tekjum af sendum á þaki húseignar samtals rúmlega kr. 300 þús á mánuði.


-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.