Blásalir 9, 201 Kópavogur
79.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
100 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1999
Brunabótamat
49.900.000
Fasteignamat
71.200.000
Opið hús: 29. september 2024 kl. 14:00 til 14:30.

Opið hús: Blásalir 9, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 29. september 2024 milli kl. 14:00 og kl. 14:30.

LANDMARK fasteignamiðlun og Júlíus Jóhannson, lögg. fasteignasali (s: 823-2600 / [email protected]) kynna:

Bjarta og fallega þriggja herbergja 100,2 m2 íbúð á jarðhæð með sérinngangi við í Blásali 9 í Kópavogi. Íbúðin er í góðu fjögurra íbúða fjölbýlishúsi sem er áklætt, byggt árið 1999. Skjólgóð afgirt verönd er út frá stofu sem snýr í suður. Íbúðin er með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum og stóru og björtu alrými með hvítri nýlegri eldhúsinnréttingu og fallegu harðparketi. Baðherbergi er rúmgott með bæði baðkari og sturtu og tengi fyrir þvottavél. Íbúðin er á barnvænum og vinsælum stað í Kópavogi með skóla, leikskóla, sundlaug og alla helstu þjónustu í nágrenninu. 
 
Eignin skiptist í anddyri og gang, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús / stofu / borðstofu og geymslu.
Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 100,2 m2 merkt 0102.

Sækja söluyfirlit strax
 
Nánari lýsing
Anddyri og gangur
er með fataskápum, flísar og harðparket á gólfi. 
Svefnherbergi I er með fataskáp, harðparket á gólfi. 
Geymsla er innaf íbúð með áföstum hillum. 
Baðherbergi er rúmgott með salerni, baðinnréttingu, baðkari og sturtu, flísar á gólfi. 
Eldhús, stofa og borðstofa er í björtu og opnu rými. Eldhúsinnrétting er hvít nýleg með góðu geymslurými, bakaraofni í vinnuhæð, helluborði og tengi fyrir uppþvottavél og ísskáp, harðparket á gólfi. úr stofu er útgengi á afgirta verönd sem snýr í suður. 
Svefnherbergi II (hjónaherbergi) er rúmgott með fataskápum, harðparket á gólfi. 

Allar nánari upplýsingar veita:
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.