Tunguás 4, 210 Garðabær
159.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
224 m2
159.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
97.960.000
Fasteignamat
158.250.000
Opið hús: 01. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús Tunguás 4 í Garðabær milli kl. 17:00 og kl. 17:30, þriðjudagnn 10. október.

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjart og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með bílskúr á skjólgóðum stað í Ásahverfinu í Garðabæ. Frábært skipulag, aukin lofthæð og suðurgarður með timburverönd og heitum potti. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
 
Eignin skiptist í forstofu og hol, rúmgott eldhús, stofu og borðstofu, fjögur - fimm svefnherbergi, sjónvarpshol, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Í bílskúr er búið að stúka af og útbúa rúmgott í svefnherbergi sem er þá fimmta svefnherbergið. Rómgott geymsluloft.
 
Smellið hér til sækja söluyfirlit - allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum [email protected].
 
Birt stærð eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS er 224,4 fm en þar af er bílskúr 30,6 fm.
 
Nánari lýsing:
Forstofa
, flísalögð.
Forstofuherbergi (11,1 fm) með fataskáp, nýlegt harðparket á gólfi.
Baðherbergi með salerni og handlaug, flísar á gólfi.
Eldhús, bjart og rúmgott með góðri innréttingu og miklu skápaplássi, tengi fyrir uppþvottavél og bakaraofn í vinnuhæð, flísar á gólfi.
Þvottahús innaf eldhúsi með innréttingu og skolvask, flísar á gólfi og útgengt á baklóð.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými, nýlegt harðparket á gólfi og útgengt á timburverönd á baklóð.
Hjónaherbergi með fataherbergi á teikningu (21,6 fm), harðparket á gólfi.
Hol með fataskápum, var áður sjónvarpshol en er fataherbergi innaf hjónaherbergi á teikningum.
Barnaherbergi I (14,6 fm) með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi II (13,8 fm) með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, nýlega endurbætt með upphengdu salerni, handlaug, walk-in sturtu og frístandandi baðkari, flísar á gólfi.
Bílskúr (30,6 fm) þar sem búið er að stúka af rúmgott svefnherbergi, fimmta svefnherbergið.
 
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu og þak borið uppi af kraftsperrum. Lóð fullfrágengin með hellulögn, timburpöllum og grasblett.
 
Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum [email protected] en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.