Bláhamrar 2, 112 Reykjavík (Grafarvogur)
56.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
2 herb.
64 m2
56.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1989
Brunabótamat
35.600.000
Fasteignamat
46.150.000
Opið hús: 30. september 2024 kl. 17:00 til 17:30.

***Bláhamrar 2, 112 Reykjavík***

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús lgf. kynna í einkasölu Bláhamra 2 íbúð 502. Tveggja herbergja íbúð á fimmtu hæð í lyftuhúsi með flottu útsýni. Íbúðin er mikið endurnýjuð með góðum svölum í austur. Frábært útsýni er úr íbúðinni og gólfsíðir gluggar eru í stofu.

Eignin komin aftur á skrá eftir að fyrirvari var ekki leystur.

Bókun í skoðun er hjá Jens Magnúsi í síma 893-1984 eða [email protected]

Sækið söluyfirlit hérna


Um er að ræða virkilega fallega og vel skipulagða íbúð. Komið er inn í anddyri með fatahengi, þaðan er gengið inn í alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Svefnherbergið er rúmgott með góðum skápum. Baðherbergi er snyrtilegt með innréttingu og baðkari, flísar eru á gólfi og veggjum. Þvottavél hefur verið komið fyrir inni í rúmgóðri geymslu sem er innan íbúðar og einnig er gert ráð fyrir þurrkara. Parket hefur verið endurnýjað á öllum gólfum nema votrýmum, þar eru flísar.
 
Mikið búið að endurnýja sameign á undanförnum árum.
Frábær staðsetning í vel viðhöldnu lyftuhúsi.
Góð setustofa er í anddyri hússins.
Stór sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í húsinu.
Þvotta- og þurkkaðstaða er í sameign.

 
Allar nánari upplýsingar eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson lgf í síma 893-1984 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.