Skektuvogur 4, 104 Reykjavík (Vogar)
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
65 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
44.940.000
Fasteignamat
59.400.000
Opið hús: 29. september 2024 kl. 12:00 til 12:30.

Opið hús: Skektuvogur 4 í Reykjavík, íbúð 101 með sérinngang garðmegin, sunnudaginn 29. september 2024 milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

LANDMARK fasteignamiðlun og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 1. hæð með sérinngang og afgirtum sérafnotarétti / 18,7 fm verönd í nýlegu fjölbýli við Skektuvogi 4 í Vogabyggð, Reykjavík 

Eignin er skráð 65,9 fm samkvæmt fasteignaskrá HMS, þar af er geymsla 8,1 fm en eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu & borðstofu, svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Eigninni fylgir stæði í bílageymslu, rúmgóð geymsla og hlutdeild í sameiginlegri hjólageymslu.

SMELLTU HÉR til að sækja söluyfirlit en annars veitir ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða gegnum [email protected].

Nánari lýsing:
Forstofa
með góðum fataskáp, harðparket á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með dökkri innréttingu, bakarofn í innbyggðum tækjum, kæliskáp og uppþvottavél sem fylgir. Harðparket á gólfi og útgengt á afgirta timburverönd / suður sérafnotarétt.
Svefnherbergi með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni of walk-in sturtu, tengi fyrir þvottavél á baðherbergi. 
Geymsla í kjallara (8,1 fm).

Eigninni fylgir stæði í bílgeymslu, búið að leggja rafmagn að stæði fyrir hleðslustöð.

Húsgjöld íbúðar eru kr 26.096 á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.

Húsið er byggta af ÞG Verk, staðsteypt, einangrað og klætt að utan sem tryggir að viðhald sé í lágmarki. Lóðin er fullfrágengin með malbikuðum stæðum, hellulögn og túnþökum. Sameiginleg garð- og leiksvæði með leiktækjum. 

Vogabyggð er nýtt hverfi í uppbyggingu þar sem eldra iðnaðarhverfi víkur fyrir nútímalegri byggð fjölbýlishúsa. Hverfið mun tengjast betur Laugarneshverfinu þegar Sæbraut verður lögð í stokk á árunum 2021-2022. Hér er um að ræða skjólsæla perlu á höfuðborgarsvæðinu í nálægð við hafið og náttúruna. Hjóla- og göngustígar liggja rétt hjá meðfram ströndinni sem og upp í Elliðaárdal. Einnig er Laugardalurinn innan seilingar. Steinsnar frá Vogabyggðinni við Elliðaárnar er að finna eitt besta útivistarsvæði borgarinnar og nær allt frá Elliðaárósum upp að Elliðavatni. Á svæðinu er fjöldi göngu- og hjólastíga. Í skógi vöxnum dalnum er að finna gott skjól í rjóðrum og tilvalið að fara lautarferð.

Allar frekari upplýsingar veiti ég í síma 663 2300 eða gegnum [email protected] en eins má finna umsagnir viðskiptavina minna á www.thorey.is
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.