L
ANDMARK kynnir Aðalstræti 22b á Ísafirði. Falleg húseign í miðbæ Ísafjarðar, nefnd Bræðraborg, sem byggð var árið 1907 og er skipt upp í þrjá matshluta,
samtals 355 fm. Skipting eignar: 1. hæð, kaffihúsið Heimabyggð 152,5 fm, 2. hæð, íbúð 96,7 fm og 3. hæð, íbúð 106,3 fm.
Allir matshlutar í útleigu í dag. Smelltu hér til að fá söluyfirlitEndurbætur undanfarinna ára að sögn seljanda: Allir gluggar í húsinu endurnýjaðir með sérsmíðuðum gluggum í eldri stil. Klæðning á bakhlið endurnýjuð og þakjárn tiltölulega nýlegt. Skipt um aðaltöflu í kjallara og rafkerfi spennubreytt. Rafinntak endurnýjað, en nýr kapall var tekinn inn í hús. Íbúðareiningar teknar í gegn og endurnýjaðar að innan í mismunandi stíl. Sérsmíðaðar útihurðar settar í framhlið hússins. Inngangur í kjallara endurnýjaður að framan. Klæðningu á framhlið hússins breytt á 3. hæð til að fá samræmi í útlit. Svalir endurnýjaðar að framan. Salerni með dælubúnaði sett í kjallara.
1. hæð - skráð sem verslunarhúsnæðiÍ dag er rekið þar kaffihúsið Heimabyggð, en rýmið skiptist í veitingasal, fullbúið eldhús, geymslurými inn af eldhúsi og salerni. Hluti er í kjallara sem eru geymslurými og salerni. Hægt að hafa tvo innganga í verslunarrými.
2. hæð - 4ra herbergja íbúðGengið inn í íbúðina baka til upp timburstiga. Forstofa er með fatahengi og af fangi er útgengt út á svalir. Svefnherbergin eru þrjú talsins með timburgólfi. Stofan er rúmgóð með fallegu timburgólfi og útsýni. Nýlegri ofnar eru í íbúð. Eldhúsið er með sjarmerandi innréttingu með góðum tækjum og timburgólfi. Baðherbergið er flísalagt með baðkari og þar er tengi fyrir þvottavél. Nýlegir ofnar eru í íbúðinni.
3. hæð - 4ra herbergja íbúð.Gengið er inn í íbúðina að aftanverðu. Forstofa íbúðarinnar er á 2. hæð og þaðan er gengið upp í íbúð. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni og eru góðir fataskápar í hjónaherbergi. Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari og tengi fyrir þvottavél ásamt handklæðaofni. Eldhúsið er með fallegri eldri innréttingu og flísum á gólfi. Áföst eyja með gufugleypi. Stofan er ágætlega rúmgóð með viðargólfi sem búið er að leggja teppi á ( ekki líma)
Kjallari er skráður 51,4 fm en er í raun um 100 fm, eða um grunnflötur hússins ( sjá teikningu) . Þar er steypt gólf og góð lofthæð. Rýmið er hólfað niður í dag með salerni. Útgangur er á baklóð, en er lokað með hlera í dag sem einfalt er að fjarlægja. Aðgengi Aðalstrætis meginn er gott, en það eru nýlegar steyptar tröppur og breið hurð. Í kjallaranum hafa verið skrifstofur og sölurými svo dæmi séu tekin.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat