Norðurbyggð 10, 815 Þorlákshöfn
73.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
167 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1989
Brunabótamat
80.550.000
Fasteignamat
62.800.000

SELD með fyrirvara 

Landmark fasteignamiðlun og Jens Magnús Jakobsson lgf, s: 8931984 eða [email protected], kynna í einkasölu Norðurbyggð 10, 815 Þorlákshöfn. Fjögurra herbergja endaraðhús sem er skráð 167,9 fm og þar af er bílskúr 42,5 fm. Góður aflokaður pallur er bakvið hús. Búið er að endurnýja eignina töluvert mikið að innan.

Bókið einkaskoðun hjá Jens Magnúsi í síma 8931984 eða [email protected]

 
Smelltu hér fyrir söluyfirlit

Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fatahengi. Þaðan er gengið inn í alrými og inn af því er eldhúsið sem búið er að endurnýja með nýlegri innréttingu. Stofan og borðstofan eru rúmgóðar með útgengi út á pall. Inn af stofunni er hol sem er með 3 svefnherbergjum og baðherbergi sem búið er að endurnýja mjög smekklega. Hjónaherbergið er rúmgott með góðu fataherbergi innaf. 
Parket er á öllum gólfum nema forstofu og baðherbergi en þar eru flísar.

Pallurinn er með heitum potti og geymluskúr.
Nýlega er búið að steypa planið við bílskúrinn.
 

Virkilega smekkleg eign sem vert er að skoða í þessu ört vaxandi sveitarfélagi í Þorlákshöfn.
 

Allar nánari upplýsingar og bókanir í skoðun eru hjá fasteignasala:
Jens Magnús Jakobsson löggiltur fasteignasali í síma 893-1984 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.