Úthlíð 13, 105 Reykjavík (Austurbær)
64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjórbýli
3 herb.
79 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1950
Brunabótamat
35.150.000
Fasteignamat
64.750.000
Opið hús: 02. október 2024 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Úthlíð 13, 105 Reykjavík. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 2. október 2024 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

LANDMARK fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali (s: 823-2800 / [email protected]) kynna:
 
Vel skipulagða þriggja herbergja 79,1 m2 íbúð í kjallara í góðu fjórbýlishúsi við Úthlíð 13 í Reykjavík. Gengið er inn um sameiginlegan inngang. Eignin skiptist í gang með góðum fataskápum, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og bjarta og rúmgóða stofu með útgengi á 9,7 m2 sérafnotareit í suður. Aðgangur er að sameiginlegu þvottahúsi í sameign og sameiginlegri geymslu undir útidtröppum. Yfirstandandi eru svalaframkvæmdir á húsinu sem greiddar verða úr hússjóði. Þakjárn, þakpappi og þakkantur var endurnýjað árið 2022. 
 
 Birtar stærðir skv. HMS: Íbúð er 79,1 m2 merkt 0001. 

Sækja söluyfirlit strax


Eignin er tilbúin til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning 
Bókið skoðun - getum sýnt með skömmum fyrirvara [email protected]



Nánari lýsing
Gangur er með flísum á gólfi og fataskáp. 
Hol er með harðparketi á gólfi. 
Eldhús er með hvítri innréttingu, eldavél með helluborði, háf fyrir ofan og tengi fyrir ísskáp, flísar á gólfi. Lítil uppþvottavél er á borði sem getur fylgt. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, handlaug með skápum og sturtu með glerskilrúmi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi. 
Stofa og borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. 
Sérafnotareitur út frá stofu er 9,7 m2 með nýrri verönd og snýr í suður. 

Um er að ræða góða þriggja herbergja íbúð á vinsælum stað í Hlíðunum, stutt frá allri helstu þjónustu og útivistarsvæði við Klambratún. 
 
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, viðskiptafr., lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2800
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
í félagi FF / [email protected] / 823-2600
Láttu okkur selja fyrir þig! Við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingar

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.