Brekkubyggð 15, 210 Garðabær
69.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
75 m2
69.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1979
Brunabótamat
39.300.000
Fasteignamat
66.000.000

LANDMARK fasteignasala, Freyja Rúnarsdóttir og Þórey Ólafsdóttir löggiltir fasteignasalar og félagsmenn í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu mikið endurbætt og vel skipulagt endaraðhús á einni hæð með suðurvesturpalli á frábærum stað í Garðabæ þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla.
 
Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu og eldhús, hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús. Eigninni fylgir einnig geymsla.
 
Allar frekari upplýsingar veita Freyja, löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða [email protected] og Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].
 
Nánari lýsing:

Forstofa, flísalögð með hvítum fataskáp.
Hjónaherbergi, rúmgott og bjart með stórum fataskáp.
Barnaherbergi, án fataskápa.
Baðherbergi, stórt og gott með hvítri innréttingu, salerni og sturtu. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa, björt og rúmgóð með gluggum út í garð.
Eldhús, endurbætt með L-laga hvítri innréttingu, innbyggð uppþvottavél fylgir.
Þvottahús með hvítri innréttingu og glugga. 
 
Gólfefni íbúðar er plankaharðparket og flísar, innihurðar og innréttingar hvítar.
 
Húsið er steinsteypt á einni hæð með afgirtum timburpalli til suðvesturs, grasflötur bakvið hús. Húsið var múrviðgert og málað að utan síðasta sumar en þakið endurnýjað fyrir einhverjum árum síðan, þá var skipt um einangrun, pappa og járn.
 
Allar frekari upplýsingar veita Freyja, löggiltur fasteignasali í síma 694 4112 eða [email protected] og Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.