LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:Um er að ræða stórglæsilegt hönnunarhús í suðurhlíðum Hafnarfjarðar Setbergslandinu með óviðjafnarlegu útsýni til austurs, suðurs og vesturs.
Húsið er teiknað af Vífli Magnússyni og hefur fengið verulega athygli fólks í gegnum tíðina. Einn eigandi er að húsinu frá upphafi.
Gott hús fyrir stórfjölskylduna og/eða með möguleika á leigutekjum.
Eignin 286.2 fm samkvæmt FMR og skiptist í þrjár hæðir auk bílskúrs og er sérinngangur á hverja hæð.
Áhugasamir aðilar er beðnir um að bóka skoðunartíma HÉR hjá:Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða
[email protected]Eignin skiptist í:Forstofu, hol, þrjár stofur, borðstofu, herbergjagangur, fjögur svefnherbergi, fjögur baðherbergi, þvottaherbergi, studioíbúð og bílskúr.
Tvennar suður-svalir og mjög stór afgirt suður-verönd á neðstu hæð.
Gott svæði milli bílskúrs og húss sem býður uppá mikla möguleika, verönd/pall/byggja yfir o.s.frv.
Nánari lýsing á eign:Á aðalhæð er komið inní
forstofu sem er með fataskápum.
Gestabaðherbergi er innaf forstofu.
Mjög rúmgóðar
stofur renna saman í eitt rými,
borstofa, stofa og setustofa með hlöðnum arni, geggjað útsýni er úr stofurýmum og af rúmgóðum
vestur-svölum sem að útgengt er á úr stofu.
Eldhús er opið að hluta inn í stofu og er hlaðinn veggur á milli stofu og eldhúss og þar er eldunareyja, snyrtilega eikar-innrétting með efri og neðri skápum,
granít-steinn í borðplötum, Span-helluborð, gert er ráð fyrir uppþvottavél og tvöföldum ísskáp í innréttingu, aukin lofthæð er á allri efri hæð.
Stigi úr stofurými er niður á miðhæðina þar sem að er komið í
hol/pall og af honum er gengið í önnur rými þeirrar hæðar, sérinngangur er einnig á þessa hæð.
Hjónaherbergi er rúmgott með
fataherbergi innaf og innaf því er flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa og salerni, útgengt á
suður-svalir úr hjónaherbergi.
Þrjú önnur góð svefnherbergi á hæðinni og er útengt úr einu þeirra á suður-svalir. Rúmgott
þvottaherbergi með ágætis innréttingu.
Aðalbaðherbergi á hæðinni er tilbúið til innréttinga, búið að leggja allar lagnir fyrir salerni/baðkar/sturtu/vask/handklæðaofn, gluggi er á baðherberginu.
Af
holi/palli er stigi áfram niður á jarðhæð, sem býður uppá mikla möguleika en þar er einnig sérinngangur þar er tilbúin í dag
studíoíbúð sem að nýtt er sem
geymsla/vinnustofa, flísalagt
baðherbergi með sturtuklefa og salerni, í alrými er eldri eldhúsinnrétting með ágætis skápum útgengt er úr studioíbúð á tvo vegu út í
stofurými/sólstofu og er hitaveitupottur þar, útgengt á afgirta ca.
100 fm suður-verönd úr skála/stofu.
Bílskúr er framan við húseign og er hann með tveim bílskúrshurðum og hægt að keyra í gegnum hann
"drive thru bílskúr", heitt, kalt vatn og rafmagn í bílskúr, ágætis
geymslurými innaf bílskúr og eins er útigeymsla við hlið bílskúrs.
Á milli bílskúrs og húseignar er ónýtt rými sem að býður uppá mikla möguleika t.d girða af og setja niður afgirtan pall þar.
Gólfefni eignar: Flísar og parket á gólfum húseignar.
Fasteignamat 2023 kr. 133.500.000.--Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA