LANDMARK fasteignamiðlun Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Álfkonuhvarf í Kópavogi með fallegu útsýni. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Sérinngangur af utanáliggjandi svölum og stæði í bílageymslu þar sem búið er að leggja fyrir bílarafhleðslustöð. Verið er að leggja lokahönd að viðamiklar endurbætur utanhúss sem seljandi greiðir fyrir.
Allar frekari upplýsingar veitir Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected].
Birt stærð séreignar er 99,0 fm. en þar af er geymsla í kjallara 10,0 fm.
Nánari lýsingForstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með u-laga eikarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél..
Stofa og borðstofa í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi. Útgengt út á rúmgóðar svalir.
Hjónaherbergi með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi, parket á gólfi og fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt með innréttingu, baðkari og upphengdu salerni.
Þvottahús innan íbúðar með tengi fyrir þvottvél/þurrkara og skolvaski.
Geymsla í kjallara (10,0 fm).
Stæði í bílageymslu (nr 13) þar sem búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð.
Húsgjöld íbúðar eru 36.782 kr á mánuði en þá er allur almennu rekstu innifalinn, allur hiti og rafmagn í sameign, ræsting sameignar, rekstur lyftu sem og einnig húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.
Álfkonuhvarf 53-55 er 29 íbúða fjölbýlishús að mestu leyti steinað að utan með lyftu, bílakjallara og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og fallega náttúru.
Allar frekari upplýsingar veitir Þórey, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða [email protected] Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA