Baugakór 16, 203 Kópavogur
101.900.000 Kr.
Hæð/ Hæð í fjórbýlishúsi
5 herb.
139 m2
101.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
62.700.000
Fasteignamat
76.450.000

LANDMARK kynnir:  Virkilega falleg og smekklega innréttuð 140 fm, 5 herbergja efri sérhæð í fjórbýli á frábærum stað í Kórahverfinu í Kópavogi.  Fjögur rúmgóð svefnherbergi  - sérinngangur.  Stutt í grunnskóla, tvo leikskóla, íþróttaaðstöðu HK, matvöruverslanir, apótek og fallegar gönguleiðir í hverfinu og ofan Elliðavatns. Lóð og sameign vel viðhaldið.

*** Síðastliðin þrjú ár hefur húsið verið sílanborið að utan, gluggar málaðir og gras og runnar tekin í gegn.***

Forstofa er flísalalögð með hvítum fataskápum og hita í gólfi.
Geymslan er 6 fm, flísalögð með glugga og er gengið í hana úr forstofu.
Inn af forstofu er rúmgott hol sem nýtt er sjónvarpshol en eikarparket er á gólfi.
Svefnherbergin fjögur eru með parketi á gólfum og hvítum fataskápum.  Fataherbergi er inn af hjónaherbergi.
Stofan og borðstofan eru í björtu opnu rými með parketi á gólfum.  Þaðan er útgengt á suðursvalir.  
Eldhúsið er með fallegri hvítri og dökk sprautulakkaðri innréttingu með stein í borðplötum.  Nýlegt Spanhelluborð er í eldhúseyju.  Tvöfaldur ísskápur getur fylgt sem og innbyggð uppþvottavél.  Gólf í eldhúsi er flísalagt.
Baðherbergið er flísalagt með hornbaðkari og sturtu með nýlegum sturtubotni.  Innréttingin er dökk með stein í borðum og fallegum vaski. Handklæðaofn er á baðherbergi.
Þvottahúsið er flísalagt við hlið baðherbergis með innréttingu.

Í sameign á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
--------------------------------------------------------------

 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 74.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.