Básbryggja 9, 110 Reykjavík (Árbær)
95.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
5 herb.
153 m2
95.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2000
Brunabótamat
74.100.000
Fasteignamat
86.650.000

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN OG SVEINN EYLAND LGF. S. 6900 820 KYNNA:
Um er að ræða rúmgóða, bjarta og vel skipulagða fimm herbergja 153.8 fm íbúð á tveim hæðum á þessum vinsæla stað í Bryggjuhverfinu.
Íbúðarrými er 131.8 fm og bílskúr sem er inngengur úr sameign er 22 fm. Skjólgóðar vestur svalir með íbúð.
Mikil lofthæð er í stofurýmum og bjartir gluggar. Tvö baðherbergi og gott geymslurými í skápum íbúðar.
Auðvelt að bæta við svefnherbergi á kostnað stofurýmis.


Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða [email protected]

FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR.

Íbúð skiptist í:
Forstofu/hol, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, geymslu innan íbúðar og bílskúr.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla á jarðhæð.

Nánari lýsing á eign:
Forstofa með innbyggðum fataskápum.
Stofa og borðstofa renna saman í opið og bjart rými með mikilli lofthæð, auðvelt væri að útbúa herbergi í hluta af stofu, útgengt á skjólgóðar vestur-svalir úr stofurými.
Eldhús er rúmgott með góðu skápaplássi og miklum föstum innréttingum, efri og neðri skápar, eldunareyja í miðju eldhúsi með helluborði og er háfur yfir eyju, gott pláss fyrir borðkrók við glugga í enda eldhúss.
Tvö herbergi eru á neðri hæð og eru fataskápar í báðum herbergjum.
Baðherbergi neðri hæðar er með flísum á gólfi og veggjum, hlaðinn sturtuklefi, vegghengt salerni, skápainnrétting undir vask og innbyggðir skápar og er búið að koma fyrir þvottavélaaðstöðu í skáp.
Úr stofurými er stigi uppá efri hæð og þar innaf rúmgott svefnherbergi með góðri lofthæð, mikið af fataskápum og vegg föstum innréttingum.
Baðherbergi er innaf svefnherbergi sem að flísalagt í hólf og gólf, hornbaðkar, vegghengt salerni, innrétting með skápum undir vask, veggskápur og speglaskápar fyrir ofan vask, opnanlegur þakgluggi á baðherbergi.
Geymsla íbúðar er innaf svefnherbergi og er nokkuð rúmgott herbergi þá er einnig súðargeymsla á efri hæð.
Bílskúr sem að tilheyrir íbúð er í norðurhluta húseignar og er inngengt í hann í gegnum sameiginlega hjóla/vagnageymslu.
Gólfefni: Parket og flísar eru á gólfum íbúðar.

Sameign er öll mjög snyrtileg og ekki er langt síðan að skipt var um teppi á sameign.
Húseign er klædd að utan með álklæðningu og er því nokkuð viðhaldsfrí að utan.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 79.000 m/vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Panta FRÍTT söluverðmat

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.