LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:Um er að ræða fjögurra herbergja 135.9 fm endaíbúð á 3.hæð með inngangi af opnum svalagangi sem er rúmgóð og vel skipulögð, íbúð er í viðhaldslitlu lyftuhúsi í Kórahverfinu í Kópavogi.
Íbúðarhluti er 129 fm og sérgeymsla í kjallara 6.9 fm.
Gluggar á 3 vegu í íbúð, stæði í lokaðri bílgeymslu. Örstutt í skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði.
ÍBÚÐ ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali gsm: 6900.820 eða [email protected]Íbúð skiptist í:
Forstofu, hol, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, sérgeymslu í kjallara og stæði í lokaðri bílgeymslu.
Sameiginleg hjóla/vagnageymsla í kjallara.
Nánari lýsing á íbúð:Komið er inn í rúmgóða
forstofu með fataskáp.
Stofa og borðstofa eru sérstaklega rúmgóðar, bjartar og renna saman í eitt rými, útgengi út á vestur-svalir úr stofu.
Eldhús er opið inn í stofurými og er með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, vönduð tæki í eldhúsi.
Svefnherbergin eru þrjú rúmgóð og með góðum fataskápum
.Baðherbergi er mjög rúmgott flísar á gólfi og veggjum, ágætis innrétting í kringum vask með skúffum, baðkar og sturta með glerskilrúmi, handklæðaofn.
Þvottahús er innan íbúðar og er flísalagt, vinnuborð með vaski.
Sérgeymsla er í kjallara og sérmerkt bílastæði í lokaðri bílgeymslu.
Í sameign er sameiginleg
hjóla og vagnageymsla.
Gólfefni: Harðparket og flísar á gólfum eignar.
Innréttingar, skápar og innihurðir eru sérsmíðaðar frá AXIS og eru öll tæki vönduð.-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða [email protected]Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA