Landmark fasteignamiðlun og Monika Hjálmtýsdóttir og Júlíus Jóhannson, lögg. fasteignasalar kynna: Fallega tveggja til þriggja herbergja 87,2 fm íbúð á þriðju hæð við Næfurás 12 í Reykjavík.
Bókið skoðun hjá [email protected] eða í síma 823-2800.
Gott skipulag er á íbúðinni og virkilega fallegt útsýni er yfir Rauðavatn og Heiðmörk. Svefnherbergi er rúmgott með stórum innbyggðum fataskápum, þaðan er útgengi á svalir í vestur. Íbúðin var talsvert endurnýjuð fyrir c.a. 10 árum en þá var baðherbergi endurnýjað, skipt var um eldhúsinnréttingu, innihurðir og flestir fataskápar og gólfefni endurnýjað. Fyrir miðju íbúðar er stúkað af gluggalaust rými með hurð, og getur nýst sem auka herbergi eða skrifstofa. Þvottahús er inn af eldhúsi og sér geymsla er í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign. Nýlegar voru gerðar endurbætur á ytra byrði hússins; það múrviðgert og málað, auk þess sem þakklæðning og þakkantar voru yfirfarðir og þak málað. Nýlega var eignaskiptayfirlýsing endurnýjuð. Húsið stendur á eignalóð.
Nánari lýsing: Forstofa er með fataskáp, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í vestur.
Aukaherbergi er gluggalaust, harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri baðinnréttingu og baðkari og sturtu með færanlegum glerskilrúmum.
Stofa og borðstofa er björt með fallegu útsýni, harðparket á gólfi. Útgengi á svalir í austur með fallegu útsýni.
Eldhús er með hvítri háglans innréttingu, span helluborði, bakarofni í vinnuhæð og innbyggðri uppþvottavél. Borðkrókur í eldhúsi, harðparket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og hillum á vegg, flísar á gólfi.
Sér geymsla er í kjallara með áföstum hillum. Birt stærð íbúðar er 79,5 fm og geymslu 7,7 fm, alls 87,2 fm skv. skráningu Þjóðskrá Íslands.
Allar nánari upplýsingar veita:
Monika Hjálmtýsdóttir, Viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
s: 823-2800 / í félagi FF / [email protected]
Júlíus Jóhannsson, lögg. fasteignasali
s: 823-2600 / í félagi FF / [email protected]
Láttu okkur selja fyrir þig.
Hafðu samband og við veitum þér sölu- og kaupráðgjöf án skuldbindingarUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LANDMARK fasteignamiðlun bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK fasteignamiðlunar
Fáðu frítt sölumat á eignina þína HÉRNA